Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 98

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 98
Kynning sveitarstjórnarmanna dingö og sat í varastjórn Bæjar- málafélags Seltjarnarness 1991. Hún er formaður í menningar- félaginu Eblan Reykjavík og situr i sóknarnefnd Seltjarnar- neskirkju frá árinu 2000. Fyrrverandi maki Sólveigar er Borgþór Kjærnested, en þau skildu nýlega. Þau eiga tvö börn, stúlku og dreng. sýslu hjá Endurmenntun Háskóla íslands. Inga Jóna stofnaði og var framkvæmdastjóri verslunarinn- ar Kistan ehf., innflutnings- og smásölufyrirtækis í Reykjavík, frá árinu 1981 þar til hún tók við nýja starfinu á Hornafirði. Sambýlsmaður Ingu Jónu er Sigurður Sigurðarson. ^NAFjðS."'5^ Inga Jóna Halldórs- dóttir framkvæmda- stjóri stjórnsýslusviðs í Sveitarfélaginu Hornafirði Inga Jóna Halldórsdóttir var í maímánuði á sl. ári ráðin fram- kvæmdastjóri stjórnsýslusviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Inga Jóna er fædd í Reykjavík 22. júlí 1959. Foreldrar hennar eru Sigrún Sigurðardóttir kaup- maður og Halldór Þorbergsson, vélstjóri og útgerðarmaður, en hann lést árið 1984. Inga Jóna lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1979 og útskrifaðist frá við- skiptadeild Háskóla íslands 1987. Árið 1990 stundaði hún nám í Salamanca og Granada á Spáni í sex mánuði og hóf í janúar sl. nám í opinberri stjórn- Stefán Ómar Jónsson bæjarritari í Mosfellsbæ Stefán Ómar Jónsson hefur verið ráðinn bæjarritari i Mos- fellsbæ frá 1. október sl. Stefán er fæddur í Reykjavík 1955 en ólst upp í Mosfellssveit þar sem hann hefúr búið lengst af með hléum þó. Hann stundaði nám við Gagn- fræðaskólann í Mosfellsbæ, við Verzlunarskóla íslands og út- skrifaðist frá Samvinnuskólanum að Bifröst 1976. Frá árinu 1993 sótti hann nám við viðskiptalög- fræðideildina í Álaborgarháskóla og lauk þaðan B.S.-námi 1997. Samhliða störfum hér heima stundaði hann áfram nám við Álaborgarháskóla og lauk þaðan M.Sc.-prófi í viðskiptalögfræði á árinu 2000. Á unglingsárunum starfaði Stefán aðallega við verslunar- og afgreiðslustörf, m.a. hjá Kaup- félagi Kjalarnessþings og Olíu- félaginu hf. auk þess að vera til sjós eitt sumar. Stefán var sveitarstjóri í Gerðahreppi frá árslokum 1980 til miðs árs 1982 og frá þeim tíma til miðs árs 1986 bæjar- stjóri á Selfossi. Á árunum 1987 til 1993 starf- aði hann sem framkvæmdastjóri Vöruborgar hf. sem var vöru- dreifingarfyrirtæki fyrir allmörg norðlensk fyrirtæki og sá um vörudreifingu og sölu á fram- leiðsluvörum fyrirtækjanna á suðvesturhorni landsins. Við heimkomuna um áramótin 1997-1998 hóf Stefán störf hjá notendabúnaðardeild Landssíma íslands hf., fyrst sem Qármála- stjóri og síðar sem forstöðu- maður. í ársbyrjun varð hann ljármála- og starfsmannastjóri í einu af dótturfyrirækjum Lands- símans, Grunni ehf., og gegndi því starfi þar til hann tók við starfi bæjarritara hjá Mosfellsbæ. Stefán er ekkjumaður en á þrjú börn. Stjórnsýsla Ólafsfjarðar- kaupstaður verður Ólafsfjarðarbær Félagsmálaráðuneytið hefur að beiðni bæjarstjórnar Ólafsfjarðar staðfest breytingu á stjórnsýslu- heiti fyrir sveitarfélagið Ólafs- fjarðarkaupstað í þá veru að nýtt heiti þess skuli vera Ólafsfjarð- arbær.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.