Helgafell - 01.04.1944, Qupperneq 16
r
FLATEYJARBÓK
er í prentun. Hún verður gefin út í fjórum bindum, alls á þriðja þúsund blað-
síður með drjúgu skýru letri. Ekkert verður til sparað að gera útgáfuna sem
bezt úr garði. Handritum verður nákvæmlega fylgt, en stafsetning þó sam-
ræmd, svo bókin verði hverjum manni auðlesin. Sigurður Nordal, prófessor,
mun rita formála með hverju bindi, greinargerð fyrir sögu og efni handritsins
og leiðbeiningar um lestur bókarinnar. Utgáfan verður prýdd myndum af
sögustöðum og úr handritinu. Hvert bindi verður bundið í sérstaklega vandað
skinnband. Tvö fyrri bindin koma út í sumar, en tvö síðari bindin fyrri hluta
næsta árs. — Flateyjarbók er stærsta og frægasta skinnbók, sem rituð hefur
verið hér á landi. Hún er varðveitt heil og ósködduð, glæsilegur minnisvarði
þeirra alda, þegar íslendingar báru af öllum þjóðum Norðurlanda í frumlegri
bókmenntastarfsemi. Meiri hluti efnis
kúnnur.
A Ð A L E F N I bindanna er þetta :
1. bindi: Clafs saga Tryggvasonar hin meiri.
2. bindi: Clafs saga helga hin meiri.
3. bindi : Sverris saga eftir Karl ábóta Jónsson.
Hákonar saga gamla eftir Sturlu Þórð-
arson.
4. bindi : Saga Magnúsar góða og Haralds
harðráða hin meiri. Annáll frá upp-
hafi heims til 1394.
En inn í eru felldar ýmsar heilar sögur m. a.
Orkneyinga saga, Færeyinga saga, Jómsvíkinga
saga og sægur af merkilegum og skemmtileg-
um þáttum, t. d. af Eindriða ilbreið, Eymundi
Hringssyni, Blóð-Agli, Hemingi Aslákssyni,
Völsa þáttur og mikið af frásögnum, sem
hvergi eru nema í Flaeyjarbók, allt austan úr
Garðaríki og vestur til Vínlands.
Hver Islendingur, sem vill J^ynnast auðlegð og
fjölbreytni jornsagnanna og sœkja þangað and-
lega heilsu og þreþ_, œtti að eignast þessa út-
gáju Flateyjarbókor.
Hún mun halda gildi sínu, vera hverjum eig-
anda sínum dýrmætur fjársjóður. þegar flest
af því, sem nú er prentað, verður gleymt og
dautt.
Eignizt Flateyjarbók■ Með því móti getið þér
jengið jáeina aj seðlunum yðar innleysta
með gulli.
hennar er almenningi hér á landi ó-
Því miður verður vegna pappírseklu að hafa
upplag útgáfunnar mjög takmarkað. Asþrijend-
ur já bóþiua með lœgra verði en hún /^osfar í
lausasölu. Þeir verða látnir sitja fyrir eintökum
í sömu röð og þeir gefa sig fram.
Eg undirritaður gerist hér með áskrifandi að
hinni nýju útgáfu Flateyjarbókar, og er und-
irskrift mín bindandi fyrir allt ritið.
Hvert bindi greiðist við móttöku.
Nafn ............................................
Heimili (Póststöð) ..............................
Hr. yfirkennari Bogi Olafsson. Reykjavík.
Pósthólf 323.
Dragið ekk.i a& senda pantanir yðar. — Ejtir
tvo mánuði getur það orðið cj seint.
Verð hvers bindis — í úrvals skinnbandi —
verður til áskrifenda kr. 100,00, og tekur hr.
yfirkennari Bogi Clafsson, Reykjavík á móti
áskriftum (og áskriftalistum).
Flateyjarútgáfan.