Helgafell - 01.04.1944, Blaðsíða 164

Helgafell - 01.04.1944, Blaðsíða 164
138 HELGAFELL aldri þeirra, þroska og jafnvel kyn- ferði. Fjórtán ára gamall unglingur er vaxinn up úr mörgum þeim ævin- týrum, sem 7—8 ára barn hefur rriik- ið yndi af. Það er og alkunna, að telpur hafa yfirleitt mest yndi af ævintýrum, en drengir meira gaman af alls konar hreystiverkasögum. —- Þegar ég tala hér um bókmenntir handa börnum og unglingum, á ég yfirleitt ekki við bækur, sem notaðar eru við kennslu, námsbækurnar, held- ur aðrar bækur, sem börn og ungling- ar lesa sér til skemmtunar og fróð- leiks. Hér, sem víða, er erfitt að draga skýrar markalínur. Lestrarbækur í móðurmálinu og Islandssögu telj- ast þó frekar til þess flokks bóka, sem ég geri hér að umtalsefni. Aft- ur á móti tel ég flestar leikjabækur, bækur um dægradvalir, föndur o. fl. þess háttar ekki til barnabókmennta; ekki heldur stafrofskver og bækur, sem notaðar eru eingöngu við lestrar- kennslu (t. d. Gagn og gaman, Litla gula hænan). Þessar síðarnefndu bæk- ur eru eingöngu samdar í þeim tilgangi að æfa börn í lestri. Bækur þessar eru ýmist tæki til kennslu eða starfs, en ekki bókmenntir í þrengri merkingu, og því er rangt, að leggja á þær mælikvarða fagurmennta. Þótt ég geri ekki þennan flokk bóka hér að um- talsefni, vil ég taka það fram, til að forðast misskilning, að ég álít hann mjög mikilvægan, og eru þar víða auð skörð, sem vér þyrftum nauð- synlega að fylla. Lestrarþroski barna fer eðlilega eftir gáfum þeirra, heilsufari og þeirri rækt, sem lögð er við menntun þeirra. All- mörg dæmi eru þess, að bráðgáfuð eða jafnvel aðeins vel gefin börn séu orðin allæs á 6. ári og jafnvel fyrr og fari þá að lesa bækur sér til skemmtunar. Greind börn verða venju- lega læs við 7 ára aldur, ef andlegt uppeldi þeirra er ekki vanrækt. Því yngra sem barnið er, því ó- gleggri mun gerir það á ímyndun og veruleika, á hinu mögulega og hinu ómögulega, á hinu eðlilega og hinu óeðlilega. Það gæðir dauða hluti lífi, og dýrin verða mannlegar persónur. Barnið hefur auðugt ímyndunarafl, það hugsar í myndum, en hirðir minna um rökþráð og sennileika. Af þessu leiðir, að ævintýri, kynjasögur alls kon- ar og þjóðsögur falla í mjög góðan jarðveg hjá börnum, sem nýlæs eru orðin. Þessi áhugi helzt fram eftir öll- um aldri, jafnvel allt lífið, þótt önn- ur áhugamál fái yfirhöndina. Gamall málsháttur segir: „Smekk- urinn, sem kemst í ker, keiminn lengi eftir ber“. Börn ættu alls ekki að lesa fánýtar bækur. Bernskan og ung- lingsárin eru hentugasti tíminn til að gera þjóðmenninguna innlífa. Þjóðsög- ur, fornar hetjusögur og ævintýri eru einhver hinn bezti lestur við hæfi barna. Þetta hæfir betur sálarþroska þeirra en flestar sögur, sem samdar eru sérstaklega handa börnum, og mun ég seinna drepa lauslega á ástæðuna til þess. Mér ofbýður, hve hirðulausir vér Jslendingar höfum verið um þetta. Nóg efni er til í þjóðsögum, íslend- ingasögunum, Noregskonungasögum, Fornaldarsögum Norðurlanda, Edd- um og sögu landsins í eins margar barnabækur og vér þurfum á að halda. Látum ekki þennan fjársjóð liggja lengur ónotaðan. Fáir munu geta tek- ið undir með skáldinu og sagt: ,,Þín fornöld og sögur mér búa í barm“, ef hann hefur ekki mótazt í bernsku af anda fornaldar og sagna. Komið ekki með mótbáru, sem ég hef oft heyrt, og er eitthvað á þessa leið: ,,Mér og þér þótti gaman að íslenzkum þjóðsögum, ævintýrum og fornsögum. En börnin eru öðruvísi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.