Helgafell - 01.04.1944, Page 35
ISLENZKI FÁNINN
17
sem skipuð var þeim Guðmundi Björnssyni landlækni, Matthíasi Þórðarsyni
fornminjaverði, Olafi Björnssyni ritstjóra, Jóni Jónssyni Aðils sagnfræðingi
og Þórarni Þorlákssyni listmálara, kom saman í fyrsta skipti 1. janúar 1914,
lauk starfi sínu 1 7. júní sama ár, og lagði þá fram tvær fánagerðir, sem Al-
þingi gæti valið um. Jafnframt var gefin út á prenti skýrsla nefndarinnar,
allstórt rit, er nefnist: „íslenzki fáninn”, með 13 fylgiskjölum og 3 fylgi-
ritum með 40 litmyndum.
I riti þessu hefur hinn þjóðkunni og óljúgfróði sagnfræðingur Jón Aðils
rilað þann kaflann, sem heitir Saga íslenzfya jánamálsins. Þar sem enn er til
í Stjórnarráðinu talsvert af nefndu riti og einnig á mörgum heimilum, tel ég
óþarft hér, enda ekki til þess tími, að rekja sögu fánamálsins í heild, en
læt mér nægja að segja hér frá afskiptum Alþingis, konungs og Hannesar
Hafsteins af fánamálinu, og vona ég, að mér takist svo að rökstyðja mál
mitt og skýra svo rétt frá, að öllum, sem lesa, verði ljóst, hversu fyrrnefndri
frú og framangreindum Jónasi Jónssyni hefur gjörsamlega mistekizt að segja
satt og rétt frá um íslenzka fánann, þ. e. hverjir réðu gerð hans, og með
hverjum hætti hún var ákveðin.
Upphaf fánamálsins er á Alþingi 1885. Þá flutti stjórnskipunarnefnd
neðri deildar frumvarp til laga um þjóðfána fyrir Island, í 6 greinum, og
þykir rétt að taka þær upp :
,, 1. gr. . Island skal hafa sérstakan fána.
2. gr. Verzlunarfána Islands skal skipt í 4 ferhyrnda reiti, er séu greind-
ir með rauðum krossi, hvítjöðruðum. Skulu þrír reitirnir vera bláir, og á
hvern þeirra markaður hvítur fálki. Fjórði reiturinn skal vera rauður með
hvítum krossi, eftir sömu hlutföllum sem í meginfánanum, og skal það vera
sá reitur, sem næstur er stönginni að ofan, þegar fáninn er hafinn. Breidd
krossins skal vera 1 /7 af breidd fánans. Báðir efri reitirnir, næst stönginni,
skulu vera rétthyrndir og jafnhliða. Lengd beggja fremri reitanna skal standa
í sama hlutfalli við lengd efri reitanna sem 6 á móti 4.
3. gr. Öll íslenzk skip skulu hafa hinn íslenzka verzlunarfána sem þjóð-
ernismerki. Islenzk skip eru þau skip, sem eru íslenzk eign, og þau skip önn-
ur, sem eru í þjónustu landsins.
4. gr. Stjórninni og umboðsmönnum hennar skal heimilt að hafa tví-
tyngdan fána, og skal hann hafa sömu gerð og hinn almenni verzlunarfáni,
að öðru leyti en því, að lengd beggja fremri reitanna skal standa í sama hlut-
falli við lengd efri reitanna sem 5 á móti 4, og skulu þá tungurnar hvor um
sig, vera að lengd 5/12 af lengd megin-fánans. Heimilt er og að hafa fanga-
mark konungs í þessum fána.
5. gr. Landsstjórnin skal gera þær ráðstafanir, sem með þarf, lögum
þessum til framkvæmda.
HELGAFELL 1944
2