Helgafell - 01.04.1944, Síða 64
Jón Magnússon
skáld
Hann lézt í febrúarmánuði í vetur sem leið, eftir
langa vanheilsu, aðeins 47 ára gamall, og varð öllum
harmdauði. Jón var sá meðal skálda vorra, sem rækti
enn með beztum árangri þá ljóðhefð, er stóð með mest-
um blóma fyrir og um síðustu aldamót. Skáldskapur
hans naut því sérstakra vinsælda hinnar eldri kyn-
slóðar, en var vel virtur af öllum. Ljóð Jóns Magnús-
sonar báru ekki síður vitni um mannkosti hans en
listfengi, og því munu þau lengi hlýja ýmsum fyrir
brjósti. — Við ritstjórar Helgafells þökkum báðir Jóni
Magnússyni óvenjulega hugþekk kynni um margra ára
skeið, og munum jafnan minnast hans meðal hinna
mætustu og ánægjulegustu manna, sem við höfum hitt
fyrir.
Helgi Hjörvar rithöfundur hefur tjáð Helgafelli, að
það megi eiga von á grein frá sér um Jón Magnússon
og skáldskap hans áður en langt um líður.
— Hann kenndi flestar íþróttir sínar blótgoðunum. Voru þeir næst honum
um allan fróðleik og fjölkynngi. Iþróttirnar „kenndi hann með rúnum og
ljóðum þeim, er galdrar heita. Fyrir því eru Æsir kallaðir galdrasmiðir“.
Oðinn og hofgoðarnir heita einnig „ljóðasmiðir, því að sú íþrótt hófst af þeim
á Norðurlöndum".
Að ætlun Snorra er hin norræna skáldlist og rúnamennt arfleifð aðkomu-
kynstofns, og þjóð sú hlítir forsjá og forustu hofgoða, serri varðveittu og juku
arfinn. Vel má vera, að þessi söguskoðun styðjist fyrst og fremst við minn-
ingar um menningar- og stjórnarfarseinkenni íslendinga á söguöld. En harla
merkilegt er það, að Snorri skuli gera ráð fyrir norrænni sérmenningu, sem
upptök eigi í hinum fjarlægu Svartahafslöndum við Donósa. Við vitum, að
þar átti eitt sinn heimkynni norræn þjóð. Það voru Erúlarnir, sem oft er getið
um í ritum þjóðflutningatímans. Víðfrægir vísindamenn, svo sem Sophus
Bugge og Otto tíon Friesen hyggja, að með Erúlum frá Svartahafslöndum
hafi rúnamenntin borizt til Norðurlanda. Snemma á 6. öld settust Erúlaflokk-
ar, sem lutu höfðingjastjórn, að í nágrenni Gauta. Frásögnin um för þeirra
til Norðurlanda er skráð af gríska sagnaritaranum ProJ^opios, sem þá var
uppi. Þegar spurt er um uppruna íslenzkrar skáldmenntar, verður að líta í
fleiri horn en aðeins til þjóðanna, er nú byggja Norðurlönd, og þeirra, sem
Keltakyns eru.
Barði Guhmundsson.