Helgafell - 01.04.1944, Qupperneq 170
144
HELGAFELL
fagra kvæÖis Tómasar. Vér þyrftum að fá meira
af svona góðum bókum, þær ,,gera börnin að
betri börnum“, eins og einhver komst að orði
um þessa bók. ,,Góðír vinir'* heitir bók eftir
Margréti Jónsdóttur kennsjukonu (Æskan 1942).
Eru í henni sögur, ljóð og leikrit, sumt frum-
samið, en sumt þýtt. Margrét var um langt skeið
ritstjóri Æskunnar og hefur hlotið miklar vin-
sældir fyrir sögur sínar og ljóð, sem þar hafa
birzt. Allar þessar sögur og kvæði eru falleg að
hugsun og snotur að búningi. Er þetta fyrsta
bindi í safni af ritverkum hennar handa börn-
um, og ætlar Æskan að gefa það út. — Stefán
Jónsson kennari hefur nýlega gefið út unglinga-
sögu í tveimur bindum,,, Vini vorsins“ (1941)
og ,,Skpladaga“ (1942) (ísafoldarprentsmiðja
h.f.). I ,,Vinum vorsins“, segir hann sögu sveita-
drengs fyrstu tvö æviárin, allt til þess tíma, er
hann verður að yfirgefa átthaga sína og flytjast
til Reykjavíkur með foreldrum sínum. I seinni
bókinni lýsir hann svo lífi þessa fátæka drengs
í höfuðstaðnum, skólagöngu hans og leikfélög-
um. Stefán er glöggskyggn á sálarlíf barna, fynd-
inn og gamansamur. Honum er sú list vel gef-
in að líta á hversdagslega viðburði frá sjónar-
miði hins fávísa, en forvitna barns, sem heimur-
inn opnast smám saman í allri sinni dýrð. Stef-
án hefur og ort mörg vinsæl kvæði handa
börnum. Allir kannast við Guttakvce&i hans,
sem náð hefur fádæma vinsældum. 1 fyrra gaf
hann út barnakvæði: ,,Það er gaman að syngja“
Eru kvæði þessi undir vinsælum og algengum
lögum og mörg hin prýðilegustu. Er vel farið,
er rithöfundar þykjast ekki upp úr því vaxnir
að skrifa við hæfi barna og unglinga, því að
sennilega eru engir lesendur þakklátari né lang-
minnugri en þeir. — Loks er að geta eina rits-
ins, sem mér er kunnugt um að valið hefur
verið nýlega handa börnum og unglingum úr
íslenzkum bókmenntum, ,,Ævintýra Fjallkpn-
unnar' (Útg. Björn Jónsson Akureyri 1942).
Þetta eru kunn tólf ævintýri úr Þjóðsögum
Jóns Árnasonar, svo sem Lítill og Trítill, Bú-
kolla og Grámann. Frágangur er snotur og bók-
in er skreytt allmörgum myndum, sem Guð-
mundur Frímann hefur teiknað. Eins og áður
hefur verið bent á, ætti að gera miklu meira
að því að gefa út ýmsa úrvalsþætti úr íslenzk-
um bókmenntum handa börnum og unglingum.
Þessi fjársjóður er yfirleitt hulinn æsku lands-
ins, en verður, eins og merkur skólamaður hef-
ur komizt að orði, ,,hold af hennar holdi og
bein af hennar beinum, jafnskjótt og henni er
fenginn hann í hendur í aðgengilegri útgáfu“.
Ég veit dæmi þess, að börn hafa gert ,,Fagrar
heyrði ég raddirnar * að eftirlætisbók sinni, og
er þó það úrval ekki sérstaklega miðað við hæfi
þeirra.
Ritað í nóvember 1943.
Símon Jóh. Agústsson.
Umsagnir um þær barna- og unglingabækur frá árinu 1943, er út komu eftir að greinin hér
að framan var rituð, svo og samskonar bækur frá fyrri hluta ársins 1944, munu birtast í Helga-
felli fyrir haustkauptíð í ár.