Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2003, Síða 82
SIGURJÓN BJÖRNSSON
í tímariti fyrr á því ári og hinu næsta á undan. Freud mun alla tíð hafa lit-
ið á þessa bók sem aðalrit sitt um uppnma mannlegs samfélags og trúar-
bragða og breytti aldrei þeim skoðunum sem hann setti fram þar.
Hvort sem memi eru sammála niðurstöðum Freuds eða ekki dylst
varla að Tótem og Tabú er merkileg bók. A bak Hð hana liggur bersýni-
lega geysimikil Hnna, sem erfitt er að skilja hvernig Freud gat mmist tími
til með öllu öðru, sem hann hafði að sinna. Freud virðist hafa lesið svo
til allt, sem þá var komið á prent af mannfræðiskrifum, flokkað og tekið
afstöðu til kenninga og smíðað úr sínar eigin niðurstöður. Sérstaklega
nýtti Freud sér hin miklu og merkilegu mannfræðiritverk Frazers, sem
þá voru ný af nálinni. Hinn frumstæði maður, raunar forsögulegur, var
megin Hðfangsefni Freuds, hugsanir hans og sálarlíf og klínísk reynsla
hans sagði honum að þar væri margt ótrúlega líkt og hjá mannsbaminu
nú á dögum og taugaveikluðmn sjúklingum.
Hér verður örstutt ágrip þessai'ar efnismiklu bókar að nægja.
Freud byrjar á því að gera að sínum tilgátur Ch. Darwins og J.J. At-
kinsons. Þeir falfrTða að maðurinn hafi á forsögulegum tímuni lifað í litl-
um hópurn og hverjum þeirra hafi verið stjórnað af öflugunr karli. Lík-
legt er að þessar mannverur hafi verið skammt á veg komnar í notkun
máls. Hinn sterki karl var drottnandi og faðir alls hópsins og vald hans
takmarkalaust og hann beitti því af ofríki. Allar konurnar voru eign hans
- eiginkonur og dætur úr hans eigin hóp og kannski nokkrar sem rænt
var úr öðrum hópum. Synir hans áttu erfiða daga. Ef þeir vöktu afbrýði
föðurins voru þeir drepnir, geltir eða rekinr burt. Eina ráð þeirra var að
safnast saman í lítil samfélög, ræna sér konum og þegar einhverjum
þeirra tókst það, komst hann í svipaða aðstöðu og faðirinn í frumhópn-
um. Yngstu synirnir höfðu nokkra sérstöðu. Móðirin hélt verndarhendi
yfir þeim og þeir gátu notfært sér að faðirinn var tekinn að eldast og tek-
ið við af honum, þegar hann dó. Freud segir að sjá megi bergmál í þjóð-
söguin og ævintýrum bæði um brottrekstur eldri sonanna og eftirlætið á
þeim yngstu. Fyrsta mikilvæga skrefið til að breyta þessu „félags“skipu-
lagi var, þegar hinir brottreknu bræður, sem bjuggu í samfélagi, samein-
uðust um að ráða niðurlögum föður síns (Atkinson) og eins og venjan var
í þann tíð, átu þeir hann. Engin þörf er á að láta sér slíkt mannát í aug-
um vaxa, segir Freud. Það viðhélst langalengi og sálkönnun sýnir að
sörnu tilfinningaafstöðuna er að finna hjá nútímabörnum. Gert er ráð
fyrir, að þeir hafi ekki aðeins hatað og óttast föður sinn heldur líka litið
80