Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2005, Page 114
MARGRÉT ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR
texta, eftirprentana og annarra ljósmynda. Textar sýningarskrárinnar eru
nær undantekningarlaust ritaðir sérstaklega fyrir skrána, oftast af sér-
fræðingum á sviði hugvísinda, og fjalla með beinum eða óbeinum hætti
um verkin á sýningtmni og höfund eða höfunda þeirra, listamanninn eða
-mennina. I stærri skrám sem gefnar eru út í tengslum við þema- og yfir-
litssýningar er stundum einnig að fenna texta um efni sem tengist þem-
anu eða þrálátu stefi í verki listamanns eða hóps listamanna. Slíkir textar
gefa sýningunni aukna vídd og auka vægi skrárinnar sem ffæðirits. I
sýningarskrám myndlistarsýninga þykir við hæfi að miðla jafeframt
upplýsingum um verkin með því að birta eftirprentanir, en einnig má í
stærri skrám sjá ljósmyndir af listamönnum og eldri sýningum svo dæmi
séu tekin.
Frá sjónarmiði miðlunarhlutverksins er skráin sýningarauki sem bætir
við upplifun gestsins og fellkomnar hana. Sýningargesturinn kaupir
skrána ef hann er ánægður með sýninguna, og vill lesa sér til. Þegar ffá
líður er sýningarskráin minni gestsins til aðstoðar; þegar hann langar til
að rifja sýningtma upp flettir hann í gegnum hana og skoðar. En sá sem
les skrána án þess að hafa séð viðkomandi sýningu lítur fyrst og ffemst á
hana sem heimild. Heimildargildi sýningarskrárinnar eykst þegar ffá líð-
ur og er því ekki síður mikilvægt en miðlunargildið ffá sjónarhóli skipu-
leggjenda sýningarinnar. Forráðamenn safha gera sér yfirleitt grein fyrir
mikilvægi heimildargildisins, ekki síst þegar söfnin hafa rannsóknar-
skyldu að gegna líkt og Listasafh Islands. Eitt af hlutverkum þess er að
afla heimilda um listaverk, varðveita þær og vinna úr þeim, meðal amtars
fyrir uppsetningu sýninga og gerð sýningarskráa. Sýningarskrár safhsins
eru innlegg í fræðilega umræðu og framlag til rannsókna þegar viðkom-
andi sýning hefur verið byggð á rannsókn. Þegar um slíkar sýningar er
að ræða má gera ráð fyrir því að niðurstöður rannsóknanna komi fram á
sýningunni og séu hluti af inntaki hennar sem textum sýningarskrárinn-
ar er ætlað að miðla. Textar skrárinnar hafa einnig það hlutverk að koma
á framfæri upplýsingum og niðurstöðum sem ekki er hægt að setja ffam
nema í orðum. Þá má einnig gera ráð fyrir því að sýningin sé skrásett í
sýningarskránni og hægt sé að ganga þar að upplýsingum vísum um
hvaða verk voru á sýningunni. Þannig miðlar skráin ekki aðeins inntaki
sýningarinnar og undirstrikar það sem henni er ætlað að segja, heldur
verður hún áreiðanleg heimild um hana.
A Islandi gegna sýningarskrár af því tagi sem hér hefer verið lýst sér-