Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2006, Page 151
„Á FRÁTEKNA STAÐNUM FYRIR MIG“
fram andstæðum lífs og dauða og það er hlutverk Oldu að vera mála-
miðlari og standa á milli tveggja ósamræmanlegra heima. Alda þráir að
vera nálægt föður sínum á meðan móðirin er þarlæg og ókunnug. Fjar-
vera móðurinnar birtist í hugsunum Oldu um hana, minningum og
skorti á minningum. A meðan Alda segir ekki margar sögur af samskipt-
um sínum við móður sína, er faðir hennar nálægur, líkt og sjá má af
æskuminningum, hugsunum hennar um hann og í því hvernig hún held-
ur ritúahskt minningu hans á lofd. Fyrir Öldu er faðirinn birtingarmynd
hfs en móðirin tákngervingur dauða.
Skorturinn á tengslum milli mæðgnanna er gefinn margvíslega til
kynna. Alda getur ekki samsamað sig móður sinni. Hún giftist ekki, ólíkt
móður sinni, og eignast ekki börn. Hringurinn sem móðir hennar gefur
henni er táknrænn fyrir örlög Öldu sem er dæmd til að hvíla til eilífðar
hjá foreldrum sínum í kirkjugarðinum: „Best þú berir hann frekar en
engan hring, sagði hún, handviss um að ég mundi engan vilja og aldrei
giftast“ (bls. 16). Hringurinn er bölvun móðurinnar og boðar endalok
Öldu.16 Dauðinn verður að eiginmanni hennar, því að líkt og hringurinn
ber vitni um, mun hún aldrei giftast, ekki ná að sigrast á ödipusar-
duldinni og aldrei samsama sig móður sinni.17
birtíst í textanum sem töf á atburðarásinni, töf eftír þráðum endalokunum. Frá-
sögnin stefnir að niðurlagi sínu, segir Brooks, leitar útskýringar í eigin dauða: „Það
verður þó að vera hinn rétti dauði, hin réttu endalok." Markmið alls lífs er dauði því
að lífveran steíhir í átt að sínum eigin dauða. Dauðahvötín er jafhffamt þrá lífver-
unnar eftír því að snúa aftur tíl ólífræns ástands: „Lífveran vill aðeins deyja á sinn
eigin hátt“. Sjá grein Peters Brooks í þýðingu Brynju Magnúsdóttur, Ritið: 2/2003,
bls. 165-190, sérstaklega bls. 181-182. Kenningar Brooks má auðveldlega heimfæra
upp á Tímaþjófinn en Alda er í textanum á valdi endurtekningaráráttunnar og þráir
jafnframt dauðann. Textinn stelhir markvisst í dauðann um leið og hann stefnir að
endalokunum.
16 Torfi H. Tulinius hefur bent á að þegar móðir Öldu gefi henni hringinn hljómi orð
hennar eins og bölvun. Torfi skoðar samband mæðgnanna með hliðsjón af kenning-
um André Green um duld hinnar látnu móður. Samkvæmt hugmyndum Greens
hafa einstaklingar oft vaxið upp í skugga sorgar sem hrjáir móður þeirra. Móðirin
þjáist af depurð og er ófær um að sýna ást sína. Barnið samsamar sig gjaman sorg
móðurinnar og af þeim sökum á það oft erfitt með að mynda tilfinningasambönd við
aðra. Sjá frekar í ,Alda et le Double: Essai d’interprétation du Voleur de vie de
Steinunn Sigurðardóttir", Le Secret d’Odin. Mélanges ojfierts d Régis Boyer, Nancy:
Presses de l'Université de Nancy, 2001.
17 Hringurinn hefur, eins og svo mörg tákn í Tímaþjófnum, margræða merkingu. Hann
mættí einnig túlka sem svo að með honum sé Alda gefin föður sínum. Þannig stend-
ur hann fyrir sifjaspell sem felur í sér öfuga hringrás. Alda heldur ekki áfram með
því að giftast og eignast böm og nær ekld að sigrast á ödipusarduldinni.
14 9