Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Page 17
„SVO SEM í SKUGGSJÁ, í ÓLJÓSRI MYND“
ers því þær voru meðal þeirra mörgu sögulegu skjala sem urðu eldi að
bráð þegar London varð fyrir sprengjuárásum í seinni heimsstyrjöldinni.
En það sem skiptir meira máli en að gögnin um réttarhöldin hafa glat-
ast er að ákvörðunum sem teknar voru í kringum aftökuna og greftrun-
ina var haldið leyndum af ásettu ráði og engin skjalleg gögn sem varða
það sem „gerðist“ voru nokknm tíma til, því þau voru aldrei fest á blað.
Þegar öllu er á botninn hvolft er ekki hægt að vita neitt um þetta efni
vegna þess að það hefur verið fært af ásettu ráði út fyrir það sem mátti
vita og þekkja. Þótt merking þessa atburðar verði „eðlilega" að vera sagn-
fræðingum ráðgáta, hefur það ekki stöðvað fólk í að draga sínar, oft mjög
frjálslegu, ályktanir, m.a. þá að Scheepers hafi ekki verið tekinn af lífi
heldur haldið föngnum í öðru landi þar til hann lést.
Mörgum spurninganna um „hvað“ gerðist er hægt að svara út frá
heimildum, þó ekki öllum, en fáum spurningum um „af hverju“. Til að
ráða í þær hafa margir skýrendur dregið ályktanir langt út fyrir það sem
hin raunverulegu sönnunargögn leyfa, frekar en að viðurkenna og takast
á við það sem mér þykir mun áhugaverðara, en það eru hinar sérsniðnu
„hindranir sýnileikans“ sem yfirvöld hafa búið tdl. Slíkar hindranir eru
mun víðtækari og áhrifameiri, eins og bent er á í efdrfarandi umfjöllun.
Hversdagslegar skipulagsstaðreyndir
Það mætti ætla að þau túlkunaratriði sem hér hefur verið vísað til eigi
einna helst við um torræð álitamál en að slíkum málum slepptum megi
nokkuð auðveldlega þekkja raunveruleg grundvallaratriði flestra, ef ekki
allra hluta í fortíðinni. Þegar öllu er á botninn hvolft benda sönmmar-
gögnin eindregið til þess að Scheepers hafi í raun og veru verið tekinn af
Kfi og lík hans grafið með leynd, þótt það svari ef til vill ekki spurn-
ingunni um „af hverju“ á fullnægjandi hátt. A hinn bóginn sýnir annað
dæmi okkur að það sem virðist vera hversdagsleg og sjálfsögð staðreynd,
getur haft flókin vandamál í för með sér ef grannt er skoðað. Þetta dæmi
snýst um skipulag stjórnarhátta breska hersins í innlimuðu Búaríkjunum,
einkum hvað varðar „fangabúðakerfið“ sem komið var á fót vegna skæru-
hernaðar Búa og fangabúðanna sem voru grunnur þess.17
„Fangabúðakerfið“ fól í sér þjóðnýtingu á vinnuafli svartra, aðskildar búðir svartra,
herlög, auk „burgher“-fangabúðanna; sjá Stanley, Mourning Becomes, bls. 76-100.
!5