Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Síða 45
BLEKKING OG MINNI
og minna sjálfsævisöguleg - lesandanum finnst það frekar vera eins konar
bónus.11
En við lestur vitnisburðar úr helförinni hefur maður einnig sterka
tilhneigingu til að stíga varlega til jarðar því eitt af því sem þeir sem lifðu
af helförina hafa oft nefint er hræðslan við að vera ekki trúað. Primo Levi
lýsir því í Se qnesto e un uomo (1947/1958; Ef þetta er maður)12 sem
endurtekinni martröð að vera kominn heim, að vera meðal vina og ætt-
ingja, en vera ekki trúað - jafnvel að hlustendurnir fyrtist við:
Eíér er systir mín með einhverjum vini, sem ég ber ekki kennsl
á, og fleira fólki.
Þau eru öll að hlusta á mig og þetta er einmitt sagan sem ég
er að segja þeim: flautan með tónana þrjá, harða rúmið, rúm-
félaginn sem mig langar til að stjaka við en er hræddur við að
vekja því hann er sterkari en ég. Eg fer líka mörgum orðum um
hungrið og aflúsunina, og Kapoann sem kýldi mig á nefið og
skipaði mér síðan að þvo mér því það blæddi úr nefinu. Þetta er
yfirþyrmandi ánægja, líkamleg, ósegjanleg, að vera heima, með-
al vina og hafa frá svo mörgu að segja: en ég kemst ekki hjá því
að sjá að áheyrendur mínir fýlgjast ekki með. I raun virðist þeim
standa á sama; þeir tala ruglingslega um aðra hluti, eins og ég
sé ekki þarna. Systir mín lítur á mig, stendur upp og fer án þess
að segja orð.13
Elie Wiesel persónugerir í La Nuit (1958; Nótt) þessa tilfinningu í
Moché, manninum í þorpinu sem Þjóðverjar taka í fýrstu umferð gyð-
ingaofsóknanna í Rúmeníu. Stór hópur gyðinga er rekinn út í skóg og
þar eru allir skomir. En þeir hitta ekki Moché og hann sleppur með því
að þykjast dauður. Hann snýr aftur í þorpið og reynir árangurslaust að
vara þá við sem eftir eru í bænum, með því að lýsa fýrir þeim hvað varð
11 Susan Rubin Suleiman, „Problems of Memory and Factuality in Recent Holocaust
Memoirs: WilkomirskiAViesel", Poetics Today 21:3, 2000, bls. 543-559, bls. 546.
12 Álffún Gunnlaugsdóttir fjallar um verk Levis, auk verka Leifs Mullers og Jorgés
Sémprun í grein sinni „í návist dauðans: Frásagmr þriggja manna af dvöl sinni í
fangabúðum nazista", Ritið 3/2003, bls. 9-53.
13 Mín þýðing úr enskri útgáfu: Primo Levi, Ifthis is a Man, þýð. Stuart Wolf, London:
Abacus, 1987, bls. 66.
43