Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Qupperneq 55
Rósa Magnúsdóttir
Sovétmenn og sambúðin við Bandaríkin
1945-1959
Allt £rá rússnesku byltdngunni árið 1917 predikuðu bolsévíkar nauðsyn
þess taka þjáningnm samtímans því betri tíð væri á næsta leiti með end-
anlegum sigri sósíalismans. Þó hefur því margoft verið haldið fram að
snemma hafi mörgum Sovétmönnum verið farið að leiðast þófið og ekki
viljað fórna sér fyrir komandi kynslóðir. Þannig hafi mörgum fundist
sem stjórnvöld væru ekki í stakk búin til að koma á sósíalisma og enn
aðrir hafi viljað hverfa alveg ffá draumnum um kommúnistaríki þar sem
hann kostaði of miklar fómir í samtímanum. Þetta varð sérstaklega
áberandi efdr gríðarlegar fómir Sovétmanna í síðari heimsstyrjöldinni
en í þessari grein verður fjallað um væntingar og gyllivonir Sovétmanna
með hliðsjón af sambandi Sovétríkjanna við Bandaríkin.1 Annars vegar
verður litfið til efdrstríðsáranna, þegar vonir um betri tíma urðu að engu
undir harðstjóm Stalíns og upphaf kalda stríðsins gerði Bandaríkin að
• Efhi greiiiarirmar er byggt á hluta doktorsritgerðar minnar, Keeping Up Appearances:
How the Soviet State Failed to Control Popular Perceptions Toward the United States of
America, 1945-1959, óbirt doktorsritgerð: University of North Carolina at Chapel
Hill, 2006. Þá hafa birst eftir mig tvær greinar þar sem nánar er farið í margt af því
efini sem hér er til umræðu. Sjá Rósa Magnúsdóttir, „The Myth of Amerika and
Soviet Socialism: Perceptdons and Reahties in the Postwar Soviet Union“, Soviet and
Post-Soviet Review, 31:3 (2004) og „Be Careful in America, Premier Khrushchev!
Soviet Perceptions of Peaceful Coexistence with the United States in 1959“, Cahiers
da monde russe, 47/1-2 (janúar-júní 2006); bls. 109-130. Eg vil koma á ffamfæri
þökkum til ritstjóra Ritsins, Þórs Whitehead og ónafngreinds ritrýnis fyrir góðar
ábendingar við gerð þessarar greinar.
1 Sjá t.d. Elena Zubkova, Russia After the War: Hopes, Illusions, and Disappointments,
1945-1951, Armonk, New York og London: M.E. Sharpe, 1998 og Yoram Gorhzki
og O. V Khlevniuk, Cold Peace: Stalin and the Soviet Ruling Circle, 1945-1953, New
York: Oxford University Press, 2004.
53