Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Side 73

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Side 73
SOVÉTMENN OG SAMBÚÐIN VIÐ BANDARÍKIN 1945-1959 heimsóknin blásin af, sem og Parísarviðræðumar sem skipulagðar höfðu verið sem hluti af Evrópuferð Eisenhowers. Arið 1962 má svo segja að Kúbudeilan hafi endanlega gert úti um vonir um friðsamlega sambúð Sovétríkjanna og Bandaríkjanna í stjómartíð Krústsjovs. Hvað sem þ\d líður tóku sovésku bréffitaramir orðræðunni um frið- samlega sambúð við Bandarfkin fagnandi árið 1959. Möguleikamir virt- ust óendanlegir. Þrátt fyrir að margir skrifuðu einungis lofræður og hermdu efdr Pravda-textanum virtust allir skrifa í einlægri von um þíðu í samskiptum stórveldanna til frambúðar. Eins var margt í bréfaskrif- unum sem sýndi að tímamir höfðu breyst mjög mikið frá því að Krústsjov tók við völdum. A tímum Stabns hefði verið algjörlega óhugs- andi að skrifa um reynslu sína af því að vinna erlendis, um flóttamenn, trúmál, framleiðslu og iðnað, jafnvel neyslumenningu og þetta sýnir að andrúmsloftið hafði breyst mjög mikið í Sovétríkjunum frá andláti hans. Stíll bréfanna endurspeglar einnig breyttan stíl sovéskra fjölmiðla og op- inberrar orðræðu efdr leyniræðuna. Þegar skoðað er hversu margt rosk- ið fólk skrifaði Krústsjov vegna ferðar hans til Bandaríkjanna, er Kklegt að það hafi verið því fegið að geta loksins hætt að hafa áhyggjur af öðm stríði. Heimsókn Krústsjovs til Bandaríkjanna árið 1959 var ætlað að kynna Sovétrfkin og sýna Bandaríkjunum fram á afrek sósíafismans og frið- samlegan boðskap hans. Sovéskir embættismenn lýstu því margir yfir að heimsóknin hefði gjörbylt áhti Bandaríkjamanna á Sovétríkjunum, svo jákvæðir væra þeir í garð Sovétríkjanna eftir frægðarför Krústsjovs. Eg hef þó í mínum rannsóknum hallast að því að ferð Krústsjovs, og aðrir viðburðir ársins 1959, hafi haft meiri áhrif á Sovétmenn en Bandaríkja- menn. Þannig vom þölmargir bréfritarar heillaðir af bandarísku sýning- unni í Moskvu og skrifuðu í löngu máh um nauðsyn þess að auka þæg- indi og kaupmátt sovéskra verkamanna til jafiis við það sem áróður Bandaríkjamanna gaf til kynna að væri almennt til siðs í Bandaríkjunum. ETmræða almennings árið 1959 gaf sterklega til kynna að þrátt fyrir góðan árangur í geimkapphlaupinu og í menntamálum hefðu sovéskir leiðtogar vanmetið þátt menningar í kalda stríðinu og hlutverk lífsstxLs, þæginda, tómstunda og tísku. Eftir amerísku sýninguna í Aloskvu árið 1959 og grænt ljós frá Krúst- sjov um að nú væri í lagi að tala um Bandaríkin sem verðugan banda- mann og samstarfsaðila í heimsmálum varð ekki aftur snúið. A þessum 7i
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.