Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Qupperneq 144
MAGNÚS FJALLDAL
ildum, en á 21 ári, frá 991 til 1012, greiddu Englendingar erlendum vík-
ingaherjum samtals 179.000 pund silíurs í „skattfé“,30 ef það er rétta orð-
ið yfir fjárkúgnn eins og þá sem þeir stunduðu. Þótt England væri auð-
ugt ríki hefur Aðalráður sjálfsagt þurft að seilast nokkuð djúpt ofan í
pyngjur þegna sinna. Sömuleiðis er hvergi minnst á meiðingar í tengsl-
um við skattheimtu. Enski annállinn nefnir tvisvar menn sem konungur
lætur blinda, en skýrir ekki hvers vegna.31
I Oláfs sögu helga er frá því sagt að London hafi fallið í hendrn Dana
(sem aldrei gerðist) og reynir Aðalráður ítrekað að vinna borgina af
þeim, en án árangurs. Bætir svo sagan við að af þessu hafi hann orðið
„mjpk hugsjúkr“.32 Sífelldar uppsölur Aðalráðs konungs eru hins vegar
ættaðar úr Enska annálnum, en þar eru þær heimfærðar upp á einn af
aðal-landvarnarmönnum konungs, Alfrík (Ælfric). Undir ártalinu 1003
segir m.a. svo:
Þetta ár var Exeter lögð í rúst..., og var þá safnað saman miklu
herliði sem Alfríkur héraðshöfðingi skyldi fara fyrir, en hann
reyndist sjálfum sér líkur. Þegar enska liðið var komið í sjón-
mál við [danska] óvinaherirm, þóttist hann kasta upp og kvaðst
vera sjúkur. Þannig skildi hann efrir höfuðlausan her.33
Halldóri hefur hins vegar þótt að þessi myndræni heigulsháttur ætti
betur við þá skopmynd sem hann dregur upp af Aðalráði konungi hinum
ráðlausa.
Um áhugamál Aðalráðs er það að segja að þau bera einkum vott um
bamaskap og tilgangsleysi. Ekki samrýmist hins vegar ofurást konungs á
Emmu drotmingu vel því sem vitað er um hjónaband þeirra, en til þess
var líklega stofiiað í pólitískum tilgangi.34 William frá Malmesbury getur
30 Sjá Magnús Fjalldal, „Norrænir menn í vesturvíking - hin hliðin", Skímir, 1987, bls.
112.
31 Sjá G.N. Garmonsway, The Anglo-Saxon Chronicle, bls. 127 og 136.
32 Bjami Aðalbjamarson, Heimskringla II, bls. 15.
33 Mín þýðing. A ensku núumamáli (G.N. Garmonsway, The Anglo-Saxon Chronicle,
bls. 134) er fomenski texti annálsins svohljóðandi: „In this year Exeter was
destroyed ... Then great levies were assembled, and it was ealdorman Ælfric's duty
to lead them, but he was up to his old tricks; as soon as they were close enough for
each force to see the other, he pretended to vomit, saying he was ill, thus leaving his
men in the lurch.“
34 Sjá F.M. Stenton, Anglo-Saxon England, bls. 379.
x42