Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Blaðsíða 171
ORIENTALISM (2003)
röklegu túlkunaraðferðir sem eru arfleifð ffá húmanískri menntun og
við getum beitt þeim á virkan hátt í veraldlegri umræðu á heimsvísu án
þess að það kalli á tálfinningasama guðrækni eða afturhvarf til hefð-
bundinna gilda eða fommennta. Hinn veraldlegi heimur er heimur sög-
unnar þar sem manneskjan mótar söguna. Ahrif gjörða mannsins em
tilefhi til rannsókna og greiningar sem hafa það hlutverk að vekja
skilning svo að hægt sé að læra af þeim, gagnrýna, hafa áhrif á og dæma
þær. Umfram allt gengst gagnrýnin hugsun ekki undir vald ríkisins eða
hlýðir skipunum um að ganga til liðs við þær fýlkingar sem sækja að
þeim sem sagður er óvinur hverju sinni. Frekar en að einblína á tilbúinn
árekstur menningarheima þurfum við að einbeita okkur að hægfara sam-
vinnu þessara menningarheima sem skarast, fá lánað hver ffá öðmm og
búa saman á áhugaverðari máta en hægt er að koma auga á með skilningi
sem byggist á einfaldaðri eða tilbúinni nálgun. En til þess að skilja
hlutina í víðara samhengi þurfum við tíma og það verður að rýna í þá
með þolinmæði og fýrirvara, auk þess sem ríkja þarf traust í garð mis-
munandi túlkunarsamfélaga, en slíku trausti er erfitt að viðhalda í veröld
þar sem sífellt er kallað á tafalausar aðgerðir og viðbrögð.
Húmanismi snýst um þau áhrif sem einstaklingseðli mannsins og hug-
lægt innsæi hafa, fremur en um viðteknar hugmyndir og ákveðið for-
ræði. Það verður að lesa texta eins og þeir séu textar sem urðu til og lifa
áfram í heimi sögunnar á ýmsa mismunandi vegu sem ég kýs að kalla
veraldlega. En þetta þýðir engan veginn að þáttur valdsins sé undan-
skilinn; þvert á móti hef ég reynt að sýna ffam á það í bókinni hvernig
valdið læðir sér inn í og skarast við öil fræði, jafnvel þau lítt þekktustu.
Og að síðustu, það sem er mikilvægast; í húmanisma felst eina - og
ég mundi vilja ganga svo langt að segja síðasta - viðnám okkar gagnvart
ómannúðlegum aðgerðum og óréttlæti sem lýta sögu mannsins. I dag
njótum við stuðnings ffá hinum gríðarlega hvetjandi lýðræðislega vett-
vangi hins staffæna rýmis, sem er opið öllum notendum á vegu sem fýrri
kynslóðir harðstjóra eða bókstafstrúarmanna létu sig ekki dreyma um.
Mótmælin gegn stríðinu í írak - sem urðu um allan heim áður en inn-
rásin hófst — hefðu ekki verið möguleg ef ekki hefði verið fýrir óhefð-
bundin tengslanet almennings, sem ná um alla jörð og gera fólki kleift
að fá upplýsingar og fféttir ffá óhefðbundnum heimildum. Þessi net eru
ákaflega vel upplýst um hreyfingar í umhverfismálum, mannréttinda-
málum og frelsisbaráttu; hugðarefhum sem tengja okkur öll saman á
169