Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2007, Blaðsíða 44
ÁGRIP ERINDA / XIII. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ
1,02-1,99), en lækkaða áhættu á lungnakrabbameini (SIR=0,74,
95% ÖB 0,60-0,89), krabbameini í þvagvegum (SIR=0,73,
95% ÖB 0,56-0,93) og magakrabbameini (SIR=0,66, 95% ÖB
0,47-0,90). Háskólamenntaðar konur höfðu aukna áhættu á að
greinast með brjóstakrabbamein (SIR=1,20, 95% ÖB 1,08-1,34).
Einnig fundust tengsl milli starfa og krabbameina. Fiskimenn
höfðu aukna áhættu á lungnakrabbameini (SIR=1,52, 95%
ÖB 1,20-1,89) og karlkyns bændur höfðu lækkaða áhættu á
lungnakrabbameini (SIR=0,52,95% ÖB 0,38-0,68).
Alyktanir: Krabbameinsáhætta á íslandi tengist menntun og starfi.
Orsakir þessara tengsla eru líkast til þær að lífshættirnir eru ólíkir
milli þjóðfélagshópa og verður það næsta skref í rannsókninni hér
á landi að kanna áhrif lífshátta á tengsl krabbameina við störf og
menntun.
E 56 Hraður framgangur krabbameins í blöðruhálskirtli hjá
arfberum BRCA2 stökkbreytingar
Laufey Tryggvadóttir', Linda Viðarsdóttir2, Tryggvi Porgeirsson2, Jón
Gunnlaugur Jónasson12, Elínborg Jóna Ólafsdóttir', Guðríður Helga
Ólafsdóttir1, Pórunn Rafnar3, Steinunn Thorlacius3, Eiríkur Jónsson4,
Jórunn Erla Eyfjörð2, Hrafn Tulinius'
'Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands, 2Iæknadeild HÍ, 3Urður,
Verðandi, Skuld, 4Landspítali
laufeyt@krabb. is
Inngangur: Brýn þörf er á nýjum aðferðum til að spá fyrir um
horfur karla sem greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli.
Stökkbreytingar í BRCA2 geninu tengjast aukinni áhættu á
að greinast með sjúkdóminn en ekki er vitað hvort þær tengist
framgangi hans að öðru leyti. Við könnuðum tengsl lifunar, stigs
og gráðu við íslensku BRCA2 landnemastökkbreytinguna hjá
sjúklingum með krabbamein í blöðruhálskirtli.
Efniviður og aðferðir: Með samkeyrslu við Krabbameinsskrána
fundust 596 sjúklingar greindir á tímabilinu 1955 til og með
2004, úr hópi 29.603 karlkyns ættingja óvalins hóps kvenna með
brjóstakrabbamein. Sýni fengust úr 527 einstaklingum (88,4%).
Líkan Cox var notað við lifunargreininguna.
Niðurstöður: Stökkbreytingin fannst hjá 30 sjúklingum (5,7%).
Miðað við sjúklinga án stökkbreytingarinnar höfðu arfberarnir
lægri greiningaraldur (69 ára miðað við 74 ára (p<0,01)), hærra
hlutfall greindist með útbreiddan sjúkdóm eða meinvörp (79%
miðað við 39%, p<0,001) og hærra hlutfall hafði gráðu G3-4 (87%
miðað við 51%, p=0,003). Hjá arfberum var hlutfallsleg áhætta á
að deyja af völdum krabbameinsins 3,41 (95% öryggisbil (CI):
2,11-5,48), leiðrétt fyrir áhrifum greiningarárs og fæðingarárs,
en 2,16 (95% CI: 1,01-4,66) þegar einnig var tekið tillit til áhrifa
stigs og gráðu. Helmingur arfbera var látinn úr sjúkdómnum eftir
2,1 ár miðað við 12,4 ár hjá sjúklingum án stökkbreytingarinnar.
Hvorki skyldleiki við brjóstakrabbameinssjúklingana né grein-
ingartímabil höfðu áhrif á horfur arfberanna.
Ályktanir: Arfberar BRCA2 stökkbreytingarinnar virðast vera
hópur sem rétt væri að fylgjast vel með varðandi krabbamein í
blöðruhálskirtli. En gildi niðurstaðnanna liggur ekki síður í því
að þær beina sjónum að atriðum sem gætu hjálpað til við að
skilgreina stærri hópa sem líklegir eru til að hafa slæmar horfur,
t.d. sjúklingar með svipaða genatjáningu og arfberarnir eða
sjúklingar með óvirkt BRCA2 gen.
E 57 Mæðravernd á Monkey Bay svæðinu í suðurhluta
Malaví
Geir Gunnlaugsson1 -, Sigríður Bára Fjalldal3, Jane Somanje4, Þóra
Steingnmsdóttir13-5
^Læknadeild HÍ, 2Miðstöð heilsuverndar barna, 3Landspítali, 4Monkey Bay
Community Hospital, Malaví, 5Miðstöð mæðraverndar
Geir. Gúnnlaugsson@hr.is
Inngangur: Mæðravernd í lágtekjulöndum einkennist víða af
óreglulegum og fáum heimsóknum á meðgöngu og margar
konur koma seint í fyrstu skoðun. Einnig er algengt að þær komi
ekki í fyrirhugaða eftirfylgd vegna vandamála sem uppgötvast.
Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna aðgengi að og aðsókn
þungaðra kvenna í mæðravernd, framkvæmd hennar og viðhorf
mæðra til þjónustunnar á Monkey Bay heilsugæslusvæðinu í
Malaví í sunnanverðri Afríku.
Efniviður og aðferðir: Slembiúrtak 215 mæðra sem áttu barn
yngra en eins árs var valið með svonefndri klasaaðferð sem er
sniðin fyrir aðstæður lágtekjulanda. Saminn var spurningalisti
með eigindlegum og megindlegum spurningum sem snertu lýð-
fræðilegar breytur, komur í mæðravernd, áhættuþætti á með-
göngu, fræðslu í mæðravernd og álit mæðranna á þjónustunni.
Viðtöl fóru fram með aðstoð túlks á heimili þátttakenda.
Niðurstöður: Allar mæðurnar nema fjórar sóttu mæðravernd í
síðustu þungun. Um þrír fjórðu þeirra höfðu skráningu af ein-
hverjum toga yfir heimsóknir sínar. Að meðaltali höfðu þær farið
4,1 sinni í mæðraskoðun á síðustu meðgöngu. Fyrsta mæðraskoð-
un var að meðaltali við 24 vikna meðgöngu. Alls höfðu 65%
skráðan einn eða fleiri áhættuþátt á meðgöngunni. Alls var 101
kona spurð hvort hún minntist þess að hafa fengið fræðslu í
mæðraverndinni og mundi helmingur þeirra eftir einhverju um
fræðsluna. Langflestar kvennanna voru jákvæðar gagnvart þjón-
ustu mæðraverndar.
Ályktanir: Mæðraverndin teygir anga sína vel út í þorpin með
góðri þátttöku mæðranna og þær eru að jafnaði jákvæðar gagn-
vart þjónustunni. Aftur á móti koma þær seint í fyrstu skoðun.
Skráning niðurstöðu mæðraskoðunar er ómarkviss og þarfnast
samræmingar. Fræðsla í mæðravernd virðist ekki skila sér til
mæðranna sem skyldi. Huga þarf betur að vinnuferlum sem
snerta gæði þjónustunnar.
E 58 Notkun IMCI vinnuferla í heilsugæslu Monkey Bay
svæðisins í Malaví
Siguröur Ragnarsson', Lovísa Leifsdóttir2- Fredrick Kapinga3, Geir
Gunnlaugsson1-4
'Læknadeild HÍ, 2Þróunarsamvinnustofnun fslands, 3Monkey Bay
Community Hospital, 4Miöstöð heilsuverndar barna
sigurra@hi.is
Inngangur: Meirihluta þeirra 10,6 milljóna barna yngri en fimm
ára (U5s) sem látast á ári hverju er unnt að fyrirbyggja með
einföldum aðgerðum. Integrated Management og Childhood
(IMCI) vinnuferlarnir auðvelda heilbrigðisstafsmönnum að meta
veik U5s og beita aðgerðum sem lækka dánartíðni barnanna.
44 Læ
knablaðið/fylgirit 53 2007/93