Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2007, Blaðsíða 64
ÁGRIP ERINDA / XIII. VÍSINDARÁÐSTEFNA H[
þátta og hátt hlutfall óútskýrðs breytileika milli atriða bendir til
þess að taka verði tillit til einstakra hegðunarþátta um leið og
heilsutengd hegðun er skoðuð í stærra samhengi lífsstflsþátta. I
mörgum tilvikum kemur fram ósamræmi í heilsutengdri hegðun
á þá leið að einstaklingar stunda bæði jákvæða og neikvæða
hegðun.
E 112 Einstofna mótefnahækkun. Náttúrulegur gangur
skoðaður á aftursýnan hátt
Hlíf Steingríinsdóttir12, Vilhelmína Haraldsdóttir', ísleifur Ólafsson1,
Vilmundur Guönason’, Helga M.Ögmundsdóttir”
'Landspítali, ’Háskóli íslands, ’Hjartavernd, ’Krabbameinsfélag íslands
hlifst@landspitali. is
Inngangur: Líkur á að góðkynja einstofna mótefnahækkun
(MGUS) þróist yfir í illkynja mergæxli (MM) eða Waldenströms
sjúkdóm (WM) eru um það bil 1% á ári. Þrátt fyrir þessa
vitneskju, er ekki vitað hversu stórt hluti sjúklinga með MM og
WM hefur áður haft MGUS. Aftursýnni nálgun er beitt til að
skoða náttúrulegan gang MGUS með það markmið að áætla
hlutfall MM og WM með MGUS forboða.
Efniviður og aðferðir: Listar yfir alla sjúklinga, sem greindust með
MM og WM frá árinu 1955, voru fengnir hjá Krabbameinsskrá og
bornir saman við skrá yfir sýni sem safnað var í tengslum við
Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar. Frá 66 sjúklingum með
MM og 10 með WM, fundust sýni sem var safnað á árunum 1967
til 1995. Prótein rafdráttur og „immunofixation" var gerð á öllum
sýnunum og tveimur pöruðum viðmiðum.
Niðurstöður: Með rafdrætti greindust einstofna mótefni í 28% til-
fella (n=21, MM=20, WM=1) og 1,3% viðmiða. Með immunofix-
ation greindist einstofna mótefni í 46% tilfella (n=35, MM=32,
WM=3) og 2,6% viðmiða. Tími frá sýnatöku til greiningar ill-
kynja sjúkdóms var 10,14 ár (meðaltal), níu ár (miðgildi, dreifing:
1-23,5) hjá tilfellum með greinanlegt einstofna mótefni í sýninu
samanborið við 14,33 ár (meðaltal), 13,5 (miðgildi, dreifing: 1,8-
31,4) hjá þeim sem ekki voru með einstofna mótefni í sýninu.
Tegund eintofna mótefnis í sýnunum var IgA í 33,4%, IgG í 57%
og IgM í 8,5% tilfella.
Ályktanir: 1. Tæplega helmingur MM tilfella hefur MGUS
forboða.
2. Tíðni MGUS hjá viðmiðum var svipuð og í öðrum stærri
rannsóknum.
3 Tíðni IgA einstofna mótefnis hjá MM tilfellum með MGUS
forboða var hærri en lýst er við MGUS almennt sem endurspeglar
niðurstöður stórra rannsókna sem hafa sýnt að áhættan á þróun
úr MGUS yfir í MM eru mest ef mótefnið er af IgA gerð.
E 113 Ónæmiskerfi þorsks (Gadus morhua L.). Rannsóknir
á náttúrulegum mótefnum
Bcrgljót Magnadóttir, Sigríður Guðmundsdóttir
Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum
bergmagn@hi.is
Inngangur: Náttúruleg mótefni eru til staðar í sermi hryggdýra
án utanaðkomandi ónæmisörvunar. Einkennandi er virkni gegn
meðal annars hapteneruðum prótínum (til dæmis TNP-BSA),
DNA og thýróglóbúlín. Náttúruleg mótefni taka þátt í fyrstu
varnarviðbrögðum og stjómun stöðugleika ónæmiskerfisins
(homeostasis). Mótefnamagn í sermi þorska er hátt, hann myndar
veikt sérvirkt mótefnasvar en sýnir háa virkni náttúrulegra
mótefna. í þessu verkefni var virkni og bindistyrkur náttúrulegra
mótefna í þorski rannsökuð, bindisækni við ýmsa mótefnavaka
og áhrif umhverfishita, aldurs, bólusetningar og sýkingar metin.
Þá voru athuguð áhrif náttúrulegra mótefna á veirusýkingu
fiskafrumulínu.
Efniviður og aðferðir: Sermi úr ýmsum þorskhópum var
notað. Mótefnavakar voru meðal annars TNP-BSA, chítosan,
thýróglóbúlín, DNA og pólýmannuronic acid. Virkni og
bindistyrkur var mældur með ónæmisþrykki og ELISA prófi og
bindisækni og greining á vakakeyrðri bindisækni með ammóníum
thíócyanate-losun. Áhrif þorskamótefnis á sýkingarmátt VHS
fiskaveiru voru prófuð í EPC frumulínu.
Helstu niðurstöður: Virkni náttúrulegra mótefna eykst með
hækkandi aldri, hækkandi umhverfishita og eftir sýkingu.
Náttúrulegt mótefnasvar hermdi eftir dæmigerðu sérvirku svari
í kjölfar bólusetningar, sérstaklega við hærri umhverfishita.
í bólusetningar- og sýkingartilraun virtist sérvirkt svar bæla
náttúrulega mótefnavirkni. Mótefni með háa virkni gegn TNP-
BSA dró meira úr veirusýkingu en mótefni með lága virkni gegn
TNP-BSA.
Ályktanir: Engar haldgóðar skýringar eru á því af hverju þorskur
myndar lélegt sérvirkt mótefnasvar. Þessar niðurstöður sýna að
náttúruleg mótefni gætu við ákveðnar aðstæður gegnt hlutverki
sérvirkra mótefna en þegar sérvirk mótefni myndast sé það á
kostnað náttúrulegra mótefna.
E 114 Ónæmiskerfi þorsks (Gadus morhua L.). Rannsóknir
á bráðasvari
Bcrglind Gísladóttir1, Sigríður Guðmundsdóttir1, Zophonías O. Jónsson2,
Bergljót Magnadóttir1
'Tilraunastöð HI í meinafræði að Keldum, 2Líffræðistofnun HÍ
bergmagn@hi.is
Inngangur: Bráðasvar er þekkt ónæmisviðbragð hjá fiskum
og verður í kjölfar áverka, álags eða sýkinga. Bráðasvari fylgir
aukning á bráðaprótínum eins og pentraxínum, það er C-reactive
prótín (CRP) og serum amyloid P (SAP). Vísbendingar eru
um að CRP aukist í þorskasermi til dæmis í kjölfar sýkingar. í
þessu verkefni voru pentraxín einangruð úr þorskasermi, gerð
þeirra skilgreind, þreifarar útbúnir og sérvirk mótefni framleidd.
Bráðasvar var framkallað í þorski og áhrif á magn og tjáningu
pentraxína greind svo og áhrif á átfrumuvirkni.
Efniviður og aðferðir: Pentraxín voru einangruð úr þorskasermi
með sértækri- og jónskiptasúlum. Sannprófun var meðal annars
með N-enda amínósýru- og MALDI-TOF MS greiningum. CRP
og S AP vísar voru hannaðir eftir amínósýrugreiningu og míníprep
útbúin. Framleidd voru sérvirk mótefni gegn pentraxínum og
Grip-ELISA þróuð til að magnmæla CRP í sermi. Bráðasvar
var framkallað í 125g þorskum sem voru sprautaðir í vöðva
Læknablaðið/fylgirit 53 2007/93