Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2007, Side 85
ÁGRIP VEGGSPJALDA / XIII. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ
geti staðið upp og staðið á eigin fótum með stuðningi grindar.
Raförvunarmeðferð fyrir aftaugaða vöðva var þróuð innan
RISE-verkefnisins sem er eina þekkta leiðin til að endurheimta
fyrri stærð og kraft vöðvanna.
Efniviður og aðferðir: Á tveggja ára tímabili voru mælingar
gerðar með kvikmyndun og úrvinnslu, það er án snertingar, á
þremur þverlömuðum sjúklingum. Markmiðið var að prófa hvort
hægt væri að lýsa kerfinu, það er hné með vöðvum, með annarrar
gráðu afleiðujöfnu. Kanna átti hvort að kennistærðir jöfnunnar
gæfu mynd af hreyfieiginleikum vöðvanna ásamt hnjálið sem
breytast þegar vöðvarnir vaxa. Sjúklingar sátu á bekk og sveiflur
neðri fótleggjar um hnjálið voru unnar úr kvikmyndum bæði fyrir
slaka vöðva og fyrir vöðva raförvaða í fullan samdrátt. Líkanið
var síðan aðhæft sveiflunum.
Hclstu niðurstöður: Eftir að hafa bætt við tveim nýjurn
kennistærðum lýsti annarrar gráðu líkanið sveiflunum vel.
Hreyfieiginleikar lærisvöðva voru fengnir með dempunarstuðli
og fjaðurstuðli kerfisins, það er aðallega vöðvanna. Breytingar
stuðlanna á þessu tveggja ára tímabili reyndust vera í samræmi
við aðrar mælingar eins og CT myndir og klínískt mat á ástandi
sjúklinga.
Ályktanir: Þessi greining og reikningar á dempunar- og fjaður-
stuðli læris hafa mikið gildi við vöktun raförvunarmeðferðar
aftaugaðra og rýra vöðva. Aðferðin er handhæg og auðveld í
notkun sem ætti að auka klínískt gildi hennar.
V 18 Prófun á réttmæti og áreiðanleika á íslenskri þýðingu
Expanded prostate cancer index composite-short form
(EPIC-26); sérhæfðu mælitæki til að mæla lífsgæði karla
sem greinst hafa með blöðruhálskirtilskrabbamein
Guðrún Sigurðardóttir', Sigríður Gunnarsdóttir1'2, Jón Hrafnkelsson1,
Nanna Friðriksdóttir1-2
'Landspítaii, 2HÍ
gitdrusig@landspitali.is
Inngangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að meta réttmæti
og áreiðanleika íslensku þýðingarinnar á spurningarlistanum
„Expanded Prostate Cancer Index-Short Form“ (EPIC-26).
Efniviður og aðferðir: Spurningalisti var sendur til 342 manna
og fengust svör frá 177 (52%) þátttakendum með EPIC-
26, spurningum um hvernig var að svara EPIC-26, SF-36
heilsukönnun, „International Index of Erectile Dysfunction“
(IIEF-5) og bakgrunnsspurningum.
Niðurstöður: Cronbachs alpha fyrir undirþætti EPIC-26 var á
bilinu 0,63-0,87. Niðurstöður þáttagreiningar á EPIC-26 studdu
fimm þætti, kynlífsþátt, þvaglekaþátt, þarmaþátt, hormóna/
lífsþróttsþátt og þvagtregðu/þvagertingarþátt. Fylgni EPIC-26
við SF-36 og IIEF-5 studdi réttmæti EPIC-26. Marktæk jákvæð
fylgni var á milli þvagertingar/þvagtregðu og allra þátta almennra
lífsgæða eins og þau voru mæld með SF-36. Einnig var marktæk
jákvæð fylgni á milli hormónaáhrifa og lífsþróttar og allra þátta
SF-36. Marktæk jákvæð fylgni var á milli áhrifa á þarma og allra
þátta SF-36 nema líkamlegrar virkni. Pað var marktæk jákvæð
fylgni á milli áhrifa á kynlíf og allra þátta SF-36 nema verkja
og andlegrar heilsu. Marktæk jákvæð fylgni var á milli þvagleka
og verkja og þvagleka og félagslegrar virkni. Pað var marktæk
jákvæð fylgni á milli kynlífshluta EPIC-26 og spurningarlistans
IIEF-5. Flestum þeim þátttakendum sem gerðu athugasemdir við
EPIC-26 þótti spurningarnar góðar og ekki erfiðar að svara.
Ályktanir: Meginniðurstöður styðja réttmæti og áreiðanleika
íslensku þýðingar EPIC-26 og benda til þess að spurningalistinn
sé góður til þess að meta sértæk lífsgæði manna sem greinast með
blöðruhálskirtilskrabbamein.
V 19 Nuss-aðgerð, nýjung í meðferð trektarbrjósts
Bjarni Torfasonu,Tómas Guðbjartsson1-2
'Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala,2læknadeild HÍ
bjamito@landspitali.is
Inngangur: Trektarbrjóst (pectus excavatum) er algengur
meðfæddur galli sem sést hjá 1/1000 barna. Þar til nýlega var
beitt opnum brjóstholsskurði til að lagfæra trektarbrjóst og voru
þetta allstórar aðgerðir og fylgikvillar algengir. Einnig var reynt
að notast við stlikonfyllingu en margir sjúklingar fengu óþægindi
frá fyllingunni. Nuss-aðgerð er ný meðferð við trektarbrjósti.
Aðgerðinni var fyrst lýst fyrir 17 árum og felst í því að sterkum
stálboga er komið fyrir aftan við bringubeinið og rétt úr trektinni.
Stálboganum er komið fyrir með aðstoð brjóstholssjár og örin
eftir aðgerðina eru því hverfandi lítil. Stálboginn er látinn sitja tvö
til þrjú ár. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna árangur
fyrstu Nuss-aðgerða hér á landi.
Efniviður og aðferðir: Afturvirk rannsókn á sjúklingum sem geng-
ust undir Nuss-aðgerð frá febrúar 2004 til mars 2006. Upplýsingar
fengust úr sjúkraskrám og aðgerðarlýsingum. Allir sjúkling-
arnir fóru í lungnamynd, tölvusneiðmyndatöku af brjóstholi og
hjartalínurit fyrir aðgerð. Sex vikum eftir aðgerðina var lagt mat
á útlitslegan árangur aðgerðanna af bæði skurðlækni og sjúklingi.
Notast var við skala frá 1 (=ófullnægjandi árangur) og upp í 5
(=mjög góður árangur).
Niðurstöður: Á tímabilinu voru framkvæmdar 14 Nuss-aðgerðir á
Landspítala (13 drengir). Meðalaldur var 18,4 ár (bil 14-27). Allir
sjúklingarnir voru án einkenna en einn hafði Marfan sjúkdóm og
annar alvarlega hryggskekkju. Meðalaðgerðartími var 68 mínútur
(bil 40-110) og engir alvarlegir fylgikvillar komu upp í aðgerð-
unum eða eftir þær. Tveir sjúklingar fengu lungnabólgu og aðrir
tveir loftbrjóst. Árangur var metinn mjög góður í 10 tilfellum
(71%) og góður í fjórum tilfellum (29%).
Ályktanir: Nuss-aðgerð er örugg og fljótleg aðgerð við trekt-
arbrjósti sem skilur eftir lítil ör. Aðgerðin leysir af hólmi allstóra
opna aðgerð og verður því að teljast fýsilegur kostur sem meðferð
við trektarbrjósti hjá börnum og ungu fólki.
V 20 Rannsókn á örveruflóru í tannholdi með 16S rRNA
greiningu
Árni R. Rúnarssonu, Viggó Þ. Marteinsson2,W. Peter Holbrook1
‘Tannkæknadeild HÍ,2Prokaria
arr3@hi.is
Læknablaðið/fylgirit 53 2006/93 85