Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2007, Page 95
ÁGRIP VEGGSPJALDA / XIII. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ
sýna að cystatín C mýlildi, uppleyst úr HCHWA-I heilavef,
drepur sléttvöðvafrumur í rækt. Mýlildismyndandi beta-prótein,
sem einkennir aðra arfgenga heilablæðingarsjúkdóma, drepur
einnig frumur og nýlegar rannsóknir benda til þess að
oxunarálag af völdum mýlildisins sé orsökin. Hugmyndin með
þessari rannsókn er að kanna hvort cystatín C mýlildisefnið
drepi sléttvöðvafrumurnar á sama hátt. Vitað er að vítamín E
verndar frumur gegn oxunarálagi, þannig að ef E vítamín hamlar
eituráhrifum cystatín C mýlildis bendir það eindregið til þess að
oxunarálag eigi þátt í dauða frumnanna.
Efniviður og aðferðir: Sléttvöðvafrumur úr heilaæðum voru
ræktaðar þar til ræktin náði nánast fullum þéttleika og síðan var
bætt út í ræktunardiska 25 pM af uppleystu cystatín C mýlildi,
einu sér, eða ásamt 50 mg/ml af vítamíni E, en rannsóknir hafa
sýnt að það er nálægt hámarksstyrk sem sléttvöðvafrumur þola.
Eituráhrifin voru síðan metin undir smásjá eftir að frumurnar
höfðu verið hertar og litaðar.
Niðurstöður: Frumniðurstöður okkar sýna afgerandi
verndunaráhrif vítamíns E gegn eituráhrifum cystatín C mýlildis
á sléttvöðvafrumur.
Ályktanir: Vítamín E veitir nokkra vernd gegn eituráhrifum
cystatín C mýlildis og bendir það eindregið til þess að oxunarálag
eigi ríkan þátt í dauða sléttvöðvafrumna heilaæðanna af völdum
cystatín C mýlildis.
Þakkir: Rannsóknin var styrkt af Rannís.
V 45 Sjálfvirkt mat á gæðum augnbotnamynda
Sveinn Ríkarður Jóelsson1, Róbert Arnar Karlsson', Gísli Hrcinn
Halldórsson1, Sveinn Hákon Harðarson2, Aðalbjörn Þorsteinsson3, Þór
Eysteinsson2, James M. Beach1, Einar Stefánsson2, Jón Atli Benediktsson1
‘Verkfræðideild HÍ, 2augndeild Landspítala, 3svæfinga- og gjörgæsludeild
Landspítala
ghh@hi.is
Inngangur: Gæði augnbotnamynda geta ráðið úrslitum hvað varðar
áreiðanleika mæliniðurstaðna þegar sjálfvirkri myndgreiningu er
beitt. Því er mikilvægt að hægt sé að hafna slæmum myndum áður
er sjálfvirk vinnsla hefst. Markmiðið með þessari rannsókn er að
þróa aðferð til þess að meta gæði augnbotnamynda sjálfvirkt í
tölvu.
Efniviður og aðferðir: Mynd er borin saman við rýrða (degraded)
útgáfu af sjálfri sér með því að reikna svokallaðan SSIM-stuðul
(Structural Similarity Index). Mynd er rýrð með því að skammta
wavelet stuðla myndarinnar (sbr. þjöppun með tapi). Ef mynd
tapar hlutfallslega miklunt gæðum við þessa þjöppun bendir
það til þess að upprunalega myndin sé í háum gæðum. SSIM-
stuðullinn er reiknaður út frá breytingum í lýsingu, skerpu
(contrast) og byggingu (structure). Þessi stuðull hefur reynst
vera í góðu samræmi við greiningu manna á gæðatapi mynda
(Zhou Wang et al. IEEE Transactions on Image Processing, vol.
13, no. 4,2004). Gagnasafn með 625 mismunandi auðkennum var
dregið út úr safni 56 mynda sem áður höfðu fengið gæðaeinkunn
frá sérfræðingum. Gangnasafnið var metið með því að flokka
myndirnar (eða auðkenni þeirra) í lág- og hágæða flokka og þær
niðurstöður bornar saman við einkunnirnar sem sérfræðingarnir
höfðu gefið myndunum.
Helstu niðurstöður: Með því að nota gæðatengd auðkenni var
56 myndum skipt í hágæða og lággæða myndir. Flokkunar-
nákvæmnin var 87-100%, miðað við mat sérfræðinga.
Ályktanir: Við höfum þróað aðferð sem metur gæði
augnbotnamynda og matið er í góðu samræmi við skoðun
sérfræðinga á myndunum.
V 46 Á vaktinni - með sveigjanlegum stöðugleika
Hildur Fjóla Antonsdóttir2 Guðbjörg Linda Rafnsdóttir2-3, Herdís Sveins-
dóttir1-2, Hólmfríður K. Gunnarsdóttir2-3
‘Hjúkrunarfræðideild HI, 2rannsóknastofa í vinnuvernd HÍ, 3heilbrigðis- og
rannsóknadeild Vinnueftirlits ríkisins
herdis@hi.is
Inngangur: Sífellt er erfiðara að manna nætur-, helgar- og stórhá-
tíðarvaktir á stofnunum. Samningsaðilar á opinbera vinnumark-
aðnum hafa komið sér saman um að finna þurfi leiðir til að mæta
þessum erfiðleikum með hag starfsmanna og stofnana í huga.
Þessi rannsókn var unnin að frumkvæði samningsaðila með það
að markmiði að kanna hvernig vaktavinnufólk lítur á vinnu sína,
kosti hennar og galla, og fá þannig hugmyndir um hvers vegna erf-
itt er að fá fólk til að vinna nætur-, helgar- og stórhátíðarvaktir.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknasnið var eigindleg rannsókn í
formi rýnihópsviðtala. Tekin voru viðtöl við fimm rýnihópa og
voru þátttakendur sex til átta ásamt tveim spyrlum í hverjum
hópi. Þátttakendur voru alls 35, 18 konur og 17 karlar, á aldr-
inum 22-80 ára. Þeir komu frá hinum ýmsu starfshópum á sviði
umönnunar, löggæslu og ýmissa annarra þjónustustarfa. Viðtölin
voru tekin upp á segulband, afrituð og greind sameiginlega af
höfundum.
Niðurstöður: Viðhorf þátttakenda til ólíkra þátta vaktavinnunnar
var margbreytilegt. Það sem einum fannst kostur, fannst öðrum
iðulega galli og öfugt. í máli flestra kom fram að helsti kosturinn
við vaktavinnu voru fríin, að geta átt góð frí á milli vaktatarna
og að vera í fríi á óhefðbundnum tímum. Gallar vaktavinnu lutu
aðallega að skipulagi vakta og fría. Óvissa, óstöðugleiki og örar
breytingar á skipulagi vakta voru helstu gallar. Óvissa um vakta-
rúlluna, til dæmis þegar hún liggur ekki tímanlega fyrir eða þegar
hún tekur miklum breytingum frá einu vaktatímabili til annars.
Besta kerfinu var lýst sem blöndu af sveigjanleika og stöðugleika.
Til þess að gera vaktavinnu yfirleitt eftirsóknaverðari virtist
höfuðatriði að efna til samstarfs stjórnenda og starfsmanna á
hverjum vinnustað þar sem allir aðilar skoða í sameiningu viðhorf
sín til vinnufyrirkomulagsins og hvernig mætti breyta og bæta.
Ályktun: Sveigjanlegur stöðugleiki í uppbyggingu vaktakerfi er
það sem stefnt skal að.
V 47 Heilbrigði og vaktavinna hjúkrunarfræðinga
Hcrdís Svcinsdóttir
Hjúkrunarfræðideild HI
herdis@hi.is
Inngangur: Niðurstöður erlendra rannsókna benda til þess
Læknablaðið/fylgirit 53 2006/93 95