Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2007, Síða 101

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2007, Síða 101
ÁGRIP VEGGSPJALDA / XIII. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ börn fara að sofa og reglusemi í mataræði; 40,8% þeirra barna sem fara að sofa fyrir miðnætti borða reglulega á móti 21,8% þeirra sem fara að sofa eftir miðnætti; 62,5% þeirra sem fara að sofa fyrir miðnætti borða morgunmat nánast daglega á móti 42,7% sem fara að sofa eftir miðnætti. Fá börn snæða morgumat með fjölskyldu sinni. Börn sem fá nægan svefn eru marktækt líklegri til að borða reglulega og borða morgunmat heldur en þau sem sofa ekki nóg. Meirihluti skólabarna (58,3%) borðar morgunmat nánast daglega. Af þeim sem borða morgunmat nánast daglega eru 55,5% strákar og 44,5% stúlkur. Af þeim sem borða nánast aldrei morgunmat eru 39,1% strákar en 60,9% stúlkur. Flest sofa í um átta klukkustundir. Marktækt fleiri drengir (55,6%) en stúlkur (44,4%) sofa skemur en átta stundir. Stúlkurnar fara fyrr að sofa og fyrr á fætur en strákarnir en eru þó ólíklegri til að borða morgunmat. Alyktanir: Af niðurstöðum má álykta að reglusemi í mataræði eða svefnvenjum endurspegli almenna reglusemi í lífsstíl. Samband er á milli svefnvenja og þess að neyta morgunverðar þó svo að ekki sé þar um algilt samband að ræða þar sem stúlkur og drengir virðast nokkuð ólík í morgunmatar- og svefnvenjum sínum. Vekja þarf umræðu um gildi svefns og reglusams mataræðis meðal barna og virkja fjölskyldur og heilbrigðisfagfólk í að stuðla að bættum svefnvenjum og morgunmatarvenjum meðal skólabarn. V 61 Sjálfsvígstilraunir með lyfjum eða eiturefnum Guðborg Auður Guðjónsdóttir1-2, Jakob Kristinsson1'4, Runólfur Pálsson3, Curtis P. Snook1'5, Margrét Blöndal2, Sigurður Guðmundsson6 1 Eitrunarmiðstöð, 2slysa- og bráðasvið og 3lyflækningasvið I Landspítala- háskólasjúkrahúsi, 4Rannsóknarstofa í lyfja-og eiturefnafræði HÍ, 5Division of Toxicology, University of Cincinnati, Cincinnati, USA, 6Landlæknisembættið giulborgg@landspitnli. is Inngangur: Eitranir af völdum lyfja og efna eru með algengustu ástæðum fyrir heimsóknum á bráðamóttökur og innlögnum á sjúkrahús á Vesturlöndum. Nýleg framsýn rannsókn á eitrunum á íslandi sýndi að sjálfsvígstilraunir eru algengasta orsök eitrunar hjá fólki á aldrinum 10-60 ára. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tíðni og eðli sjálfsvígstilrauna á íslandi þar sem notuð eru lyf eða eiturefni. Efniviður og aðferðir: Notuð voru gögn úr íslensku eitrunarrannsókninni sem var framsýn og náði yfir allt landið. Rannsóknartímabilið var eitt ár, frá 1. apríl 2001 til 31. mars 2002. Leitað var að upplýsingum um alla sjúklinga sem komu á bráðamóttöku, sjúkrahús eða heilsugæslustöð vegna sjálfsvígstilrauna. Niðurstöður: Alls greindust 414 sjálfsvígstilraunir eða 1,4 á hverja 1.000 íbúa. Þetta er 69% af áætluðum heildarfjölda sjálfsvíga í landinu. Konur voru 304 og karlar 110. Tíðni sjálfsvígstilrauna var hæst hjá 15-19 ára konum. Börn yngri en 18 ára voru 58 (14%). Langoftast var um samsettar lyfjaeitranir að ræða, þar sem notuð voru fleiri en eitt lyf. Önnur efni en lyf voru notuð í sex tilfellum. Róandi lyf, svefnlyf, alkóhól, þríhringlaga geðdeyfðarlyf og verkjalyf voru mest notuðu lyfin. í 80% tilfella gerðist atburðurinn inni á heimili og 44% sjúklinga höfðu reynt sjálfsvíg áður með lyfjum eða efnum. Fimmtíu og tveir (13%) sjúklingar voru lagðir inn á gjörgæslu, 236 (57%) inn á aðrar deildir og 126 (30%) voru útskrifaðir eftir mat og meðferð á bráðamóttöku. Enginn sjúklingur lést. Alyktanir: Tíðni sjálfsvígstilrauna með lyfjum er há samanborið við tíðni annarra sjálfsvígstilrauna og er mun hærri meðal kvenna en karla. Endurteknar sjálfsvígtilraunir með lyfjum eru algengar. Engin dauðsföll urðu í þessari rannsókn sem bendir til þess að dánartíðnin sé lág. V 62 Dánarmein þeirra sem notuðu bráðamóttöku sjúkra- húss og voru sendir heim Oddný S. Gunnarsdóttir1, Vilhjálmur Rafnsson2 ‘Skrifstofa kennslu, vísinda og þróunar Landspítala, 2rannsóknarstofa í heilbrigðisfræði, læknadeild HI vilraf@hi.is Inngangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að ákvarða árlegan fjölda notenda sem voru útskrifaðir heim eftir að hafa sótt á bráðamóttökuna eftir aldri, kyni og fjölda heimsókna á hverju ári og athuga hvort fjöldi heimsókna spáir fyrir um hærri dánartíðni. Efniviður og aðferðir: Þetta var aftursýn ferilrannsókn á dánarmeinum þar sem notuð var Dánameinaskrá Hagstofu íslands. Alls höfðu 19.259 sjúklingar sótt til bráðamóttöku Landspítala Hringbraut á árunum 1995 til 2001 og verið útskrifaðir heim. Reiknað var staðlað dánarhlutfall og áhættuhlutfall þar sem notuð var tímaháð fjölþáttagreining. Niðurstöður: Árleg aukning heimsókna á bráðamóttökuna, þegar menn voru sendir heim, var 7-14% eftir aldurshópum á árunum 1995 til 2001. Dánarhlutfall þeirra sem sendir voru heim af bráða- móttökunni, miðað við aðra, var 1,81 fyrir karla og 1,93 fyrir konur. Dánartíðnin var hærri meðal þeirra sem komu tvisvar eða þrisvar eða oftar á móttökuna miða við þá sem komu einu sinni. Dánarmeinin sem leiddu til hæstu dánartíðninnar hjá þeim sem komu oft á móttökuna voru krabbamein, blóðþurrðarsjúkdómar hjarta, ytri orsakir, einkum eitranir, sjálfsmorð og líklega sjálfs- morð. Ályktanir: Þar sem bráðamóttakan var fyrir lyflækningar og skurðlækningar, ekki slys, kom há dánartíðni vegna lyfjaeitrana og sjálfsmorða á óvart. Frekari rannsóknir eru nauðsynlegar á útskriftargreiningum þeirra sem koma endurtekið á móttökuna til þess að reyna að skilja og koma í veg fyrir þessa háu dán- artíðni. V 63 Heilsa og líðan fólks sem greinst hefur með krabba- mein. Þreifirannsókn Eiríkur Örn Arnarson1-3, Snorri Ingimarsson2, Sigurður Örn Hektorsson2, Ragnhildur S. Georgsdóttir1, Arna D. Einarsdóttir2, Helgi Sigurðsson2-3 4Sálfræðiþjónusta Landspítala, 2endurhæfingarsviði, 5krabbameinslækn- inga-deild Landspítala, læknadeild HÍ eirikur@landspitali. is Læknablaðið/fylgirit 53 20 06/93 101 L
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.