Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2007, Síða 114
ÁGRIP VEGGSPJALDA / XIII. VÍSINDARÁÐSTEFNA H í
neyslu. Aftur á móti minnkaði hlutur ómega-3 fitusýra verulega í
fituvef bæði hjá sólblóma- og tólghópnum við ofát vegna aukins
hluts bæði mettaðra og einómettaðra fitusýra.
Ályktanir: Pessi dýratilraun sýnir að ofát af ómega-3 fitusýrum úr
sjávarfangi viðheldur styrk þeirra í fituvef, sem kann að minnka
líkur á sjúkdómum tengdum offitu.
V 97 Tengsl æðasjúkdóma í heila og taugasálfræðilegs
mynsturs hjá eldra fólki án heilabilunar sem tók þátt í
Öldrunarrannsókn Hjartaverndar
Aöalheiðar Sigfúsdóttur1'2. Pálmi V. Jónsson1,2,3 María K. Jónsdóttir123,
Thor Aspelund3, Ólafur Kjartansson2'3, Guðný Eiríksdóttir3, Sigurður
Sigurðsson3, Lenore J. Launer4, Vilmunur Guðnason3
HÍ,2 Landspítali, 3Hjartavernd. 4National Intitute on Aging, NIH
adalheichir@hjarta.is
Inngangur: Með tilkomu segulómunar á heila hafa rannsóknir
á áhrifum æðasjúkdóma í heila á vitræna getu aukist. I þessari
rannsókn var skoðað hvort og þá hvernig taugasálfræðileg færni
breytist hjá eldra fólki án heilabilunar út frá hvítavefsbreytingum,
heiladrepi eða samblandi þessara tveggja æðasjúkdóma í heila
með hliðsjón af klínísku gildi þessara upplýsinga.
Efniviður og aðferð: Þátttakendur voru 768 karlar og 1056
konur (meðalaldur = 75,73 og 75,57, p=0,50) á aldrinum 66-92
ára sem tóku þátt í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar. Ut frá
segulómun af heila var rannsóknarhópnum skipt í fjóra hópa eftir
magni og gerð æðasjúkdóma: litlar hvítavefsbreytingar í heila
án heiladreps; umtalsverðar hvítavefsbreytingar án heiladreps;
heiladrep og litlar hvítavefsbreytingar; heiladrep og umtalsverðar
hvítavefsbreytingar. Taugasálfræðileg próf sem notuð voru mátu,
hugrænan hraða og athygli (Stroopl og 2, samanburður mynda,
Cantab hraðapróf); yrt minni (California verbal learning test
og talnaraðir áfram); og stýringu (Stroop3, talnaraðir afturábak,
Cantab f. vinnsluminni).
Niðurstöður: Þegar tekið hafði verið tillit til aldurs, kyns og
menntunar kom fram marktækur munur á hópunum með litlar
hvítavefsbreytingar án heiladreps og þess með bæði umtalsverðar
hvítavefsbreytingar og minnst eitt heiladrep. Munurinn kom
fram á taugasálfræðilegum prófum sem meta hugrænan hraða og
athygli (Stroop2 og samanburð mynda) og stýringu (Stroop3).
Munur á meðaltölum taugasálfræðilegu prófanna var hins vegar
lítill og skýrði einungis um 1% af dreifingu skora milli heilaæða-
sjúkdómahópanna.
Ályktanir: Lítil tengsl eru á milli taugasálfræðilegrar færni og
hvítavefsbreytinga og/eða heiladrepa hjá fólki án heilabilunar
þannig að klínískt gildi þessara upplýsinga er vart mikið.
V 98 Líðan einstaklinga með illkynja sjúkdóma. Forprófun
mælitækis
Halla Þorvaldsdóttir', Alfa Freysdóttir, Barbel Schmid', Bjarni Bjarnason2,
Bragi Skúlason1 .Friðbjörn Sigurðsson1, Jakob Smári2,Nanna Friðriksdóttir1-2,
Sigríður Gunnarsdóttir u
'Landspftali, 2HI
liallath@landspitali. is
Inngangur: Erlendar rannsóknir sýna að 20-40% einstaklinga
með illkynja sjúkdóma finna fyrir verulegri vanlíðan (distress) en
10% fá viðeigandi sálfélagslega meðferð. Mikil vanlíðan truflar
ákvarðanatöku og meðferðarheldni og skerðir lífsgæði.
Markmið: Að skoða sálmælingalega eiginleika íslenskrar útgáfu
mælitækis National Comprehensive Cancer Network “Matskvarði
fyrir vanlíðan og orsakir hennar,, (Distress Thermometer og
Problem List, DT), hversu fýsilegt er að nota það og áætla
viðeigandi vendipunkt (cut-off). Mælitækið samanstendur af
mælistiku sem metur vanlíðan frá 0 (engin vanlíðan) til 10
(gríðarleg vanlíðan) og 35 spurninga vandamálalista, í fimm
flokkum, um orsakir vanlíðunarinnar.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknarhópurinn þýddi mælitækið og
löggildur skjalaþýðandi bakþýddi. Sjúklingar (heildarfjöldi 149,
50 karlar og 95 konur, meðalaldur (SF) 59,06 ár (12,92)) á dag- og
göngudeildum LYF II á Landspítala svöruðu í eitt skipti, annars
vegar bakgrunnsspurningum, DT, HADS (Hospital Anxiety and
Depression Scale), GHQ-30 (General Health Questionnaire) og
fimm spurningum um mælitækið.
Niðurstöður: Dreifing skora á DT var frá 0 til 10. Meðaltalsskor
(SF) á DT var 3,09 (2,40), á HADS 7,30 (4,86) og GHQ-30 5,28
(5,60), enginn marktækur kynjamunur. Marktæk fylgni var milli
DT og allra undirþátta vandamálalistans, mest við líkamleg
og tilfinningaleg vandamál. Marktæk fylgni var milli DT og
HADS (r=0,45) og GHQ-30 (r=0,57) og milli HADS og GHQ-
30 (r=0,68). ROC-greining sýndi að vendipunkturinn 3 á DT
gæfi bestu fundvísi og sértækni miðað við HADS og GHQ-30.
Pátttakendur voru að meðaltali rúmar fimm mínútur að svara
mælitækinu sem þeir mátu auðskiljanlegt og auðvelt að svara.
Ályktanir: Sálmælingalegir eiginleikar mælitækisins eru
ásættanlegir og fýsilegt virðist að nota það í rannsóknum og
klínískri vinnu.
j
114 Læknablaðið/fylgirit 53 2007/93