Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 31
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 31
kolkrabbanum skipt upp
Viðskiptalífið nötraði 18. september
2003 þegar víðtæk uppstokkun var gerð
á Eimskip og tengdum félögum. Það voru
Landsbankinn og Íslandsbankinn sem
stóðu að uppstokkuninni sem gjarna hefur
verið nefnd uppstokkunin á kolkrabb-
anum. Íslandsbanki fékk hluti Eimskips
í Flugleiðum, Íslandsbanka og Sjóvá-
Almennum, auk þess að kaupa hlut í Sjóvá-
Almennum sem myndaði yfirtökuskyldu,
– og þá keypti Íslandsbanki kjölfestuhlut í
Straumi. Landsbankinn fékk Eimskip, þ.e.
Eimskip flutninga, Brim (ÚA, HB, Skagstr.)
og Burðarás (fjárfestingarfélag; SH, Marel,
Steinhólar o.fl.). Bjarni Ármannsson, for-
stjóri Íslandsbanka, og Sigurjón Árnason
og Halldór Jón Kristjánsson, bankastjórar
Landsbankans, tilkynntu á blaðamanna-
fundum um þessa víðtækustu uppstokkun
sem gerð hafði verið á þekktustu fyrirtækja-
samsteypu landsins. Nýir tímar voru komnir
í viðskiptalífinu; nýir viðskiptahættir, nýir
menn. Bankarnir voru orðnir yfirgnæfandi og
hinn raunverulegi drifkraftur í viðskiptalífinu
með því að skipta upp fyrirtækjum og eign-
ast þau.
Spilum sóknarbolta
Eftir uppstokkunina á Eimskip sagði Björg-
ólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs-
Landsbankans, að spilaður yrði sóknarbolti í ís-
lensku viðskiptalífi og miklir möguleikar væru
á raunhæfri útrás margra þekktra fyrirtækja.
erlent fjármagn flæddi inn
Þegar hér var komið sögu var ljóst að
íslenskt viðskiptalíf hafði tekið stakka-
skiptum. Bankarnir voru aðalleikararnir á
sviðinu og höfðu ítök í stærstu fyrirtækjum
landsins. Þeir hófu sóknarbolta af krafti sem
aldrei fyrr og erlent fjármagn flæddi inn í
landið í gegnum bankana. Tekinn var snún-
ingur á nánast öllum stórum fyrirtækjum
á Íslandi, þ.e. þau voru seld og bankarnir
fjármögnuðu kaup nýrra eigenda. Þá var
fé mokað í einstaklinga og fyrirtækja til að
kaupa hlutabréf. Loks voru bankarnir orðnir
mjög áberandi fjárfestar í stærstu fyrirtækj-
unum og stýrðu þeim í rauninni – auk þess
sem þeir lánuðu stórfé til þessara fyrirtækja
og bökkuðu þannig útrásina upp beint og
óbeint; þ.e. með því að taka erlend lán hjá
þekktum erlendum stórbönkum og endurlána
til fyrirtækjanna og helstu eigenda þeirra;
sterkustu fjárfesta landsins.
k a u p a u k a r
18. september 2003. Kolkrabbanum skipt upp. Bankastjórar Landsbankans, þeir Sigurjón Árnason og Halldór Jón Kristjánsson, greina frá
uppstokkuninni á Eimskipafélaginu og öllum fyrirtækjum þess félags á milli Landsbankans og Íslandsbanka. Þetta var tákn nýrra vinnu-
bragða. Bankarnir voru orðnir aðalleikararnir á sviðinu.
BaNkarNir GráðuGri ...
18. 09. 2003
eimskip skipt upp