Frjáls verslun - 01.09.2006, Page 39
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 39
almennt mjög sáttir með hvernig til tókst
við uppbyggingu á þessu svæði en það hafði
lengi verið í hálfgerðri niðurníðslu. Góð við-
brögð við framkvæmdum þar hvöttu okkur
til dáða. Í rauninni ætlaði Hanza-hópurinn
bara að starfa að þessu eina verkefni, en
úr því þetta heppnaðist og hópurinn náði
saman var ákveðið að halda samstarfinu
áfram,“ segir Bjarki. Því keypti Hanza-hóp-
urinn svonefnt Arnarnesland í Garðabæ
fyrir milligöngu Glitnis og var gengið frá
samningum í sumar. Verkefnið framundan
er að ljúka uppbyggingunni á Arnarneshæð,
en þar verða alls um 330 íbúðir. Má ætla að
uppbyggingunni verði lokið og flutt inn í öll
húsin eftir um þrjú ár.
„Arnarneshæðin er miðsvæðis, liggur mjög
miðlægt gagnvart öllum umferðaræðum og
stutt er í alla þjónusta. Þetta er eitt allra best
staðsetta hverfið á höfuðborgarsvæðinu,“
segja þeir bræður.
Kársnes, Mýrargata, Þverholt
Fjölmörg fleiri járn eru í eldi Hanza-hópsins.
Þannig hefur félagið tryggt sér byggingarétt á
Kársnesinu, en bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa
nú sett af stað undirbúning vegna uppbygg-
ingar bryggjuhverfis og ættu framkvæmdir
að geta hafist eftir þrjú ár eða svo. Und-
irbúningur vegna framkvæmda við Strand-
götu í Hafnarfirði er sömuleiðis í fullum
gangi. Hins vegar eru framkvæmdir við DV-
húsið við Þverholt í bið-
stöðu vegna skipulagsmála.
Framkvæmdir við bygg-
ingu loftíbúða fara af stað
að nýju eftir áramótin, en
skipulagsyfirvöld í Reykja-
vík hefur nú endurskoðað
heildarskipulag Slippsvæð-
isins, en kærumál leiddu til
þess að eldra skipulag var
felt út gildi.
„Það er bagalegt þegar kærumál stöðva
framkvæmdir jafnvel svo misserum skiptir.
Það er sjálfsagt og eðlilegt að geta lagt
inn kæru en úrlausn mála verður að taka
skemmri tíma en nú er. Einn til tveir mán-
uðir ættu að vera hámarkstími, en í dag
getur umfjöllun máls í kerfinu tekið eitt til
tvö ár. Slíkt er afar dýrt fyrir alla hlutaðeig-
endur,“ segir Arnar.
Arnar bætir því við að þeir bræður stefni
á landvinninga og framkvæmdir á fasteigna-
sviðinu í Glasgow í Skotlandi og ef til vill
víðar í náinni framtíð.
Mikilvægt að bjóða nýjar lausnir
Um þessar mundir eru í byggingu við Haga-
flöt á Akranesi tvö fimm hæða fjölbýlis-
hús, með tuttugu íbúðum
hvort. Arnar og Bjarki
standa að framkvæmdinni
og tala sveitungar þeirra
á Skaganum gjarnan um
Tvíburaturnanna. Þar
verða fyrstu íbúðirnar
afhentar kaupendum í apríl
á næsta ári. „Til skamms
tíma hafa kröfurnar sem
Akurnesingar leggja til
grundvallar fasteignakaupum verið talsvert
aðrar en hér í Reykjavík. Þetta er samt
að breytast. Við lögðum mikið upp úr að
arkitektúr íbúða í þessum tveimur fjölbýlis-
húsum væri í samræmi við nýjustu strauma
og að óskum kröfuharðra viðskiptavina væri
mætt. Ég tel það hafa tekist,“ segir Arnar og
„Við bræðurnir
vorum ákveðnir að
fara út í viðskipti og
nota peningana sem
við lögðum fyrir á
knattspyrnuferlinum til
að komast á skrið.“
A T H A F N A M E N N
Hanza-hópurinn. Frá vinstri talið, Bjarki Gunnlaugsson, Guðni Bergsson, Jón Grétar Jónsson,
framkvæmdastjórinn Sigrún Þorgrímsdóttir, Brynjar Harðarson og Arnar Gunnlaugsson.