Frjáls verslun - 01.09.2006, Page 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
bætir við að fasteignaverð á nýbyggingum
á Akranesi sé að jafnaði um 10 til 20%
lægra en gerist í Reykjavík. Munurinn verði
minni með hverju árinu sem líður vegna
skýrrar ímyndar bæjarins sem fjölskyldu-
væns íþróttabæjar. Skaginn þyki einfaldlega
spennandi staður.
„Til að ná árangri er mikilvægt að bjóða
fasteignakaupendum nýjar lausnir og val-
kosti. Þannig þurfa kaupendur íbúðanna á
Akranesi aðeins að greiða staðfestingargjald
þegar gengið er frá kaupsamningi og loka-
greiðslu þegar íbúðin er afhent. Við sleppum
fokheldisgreiðslu, enda engin ástæða að halda
í það fyrirkomulag þegar heildarfjármögnun
verkefnis er tryggð eins og við höfum náð í
samstarfi við VBS-fjárfestingabanka.“
Reglum breytt í miðjum leik
Bjarki telur fráleitt að segja fasteignamark-
aðinn hruninn eins og margir töldu síð-
astliðið sumar þegar dró úr eftirspurn og
fjármálastofnanir hertu útlánakröfur sínar.
Ástandið á markaðnum nú megi teljast eðli-
legt, fólk gefi sér rýmri tíma til að ganga frá
viðskiptum og flani ekki að neinu.
„Í sumar kom upp taugaveiklun á mark-
aðnum, þegar bankarnir hægðu á útlánum og
lækkuðu lánshlutfallið, meðal annars vegna
gagnrýni erlendra banka- og matsfyrirtækja.
Farið var að krefjast vandaðra greiðslumats
frá lántakendum, það hefði auðvitað átt að
gera um leið og bankarnir fóru inn á fast-
eignamarkaðinn og allir gátu fengið lánaða
þá upphæð sem þeir vildu. Slíkt var óeðlilegt,
betra hefði verið, ef bankarnir hefðu strax
í upphafi verið stífir á greiðslumatinu. Þá
hefði ekki þurft að koma til þessara aðhalds-
aðgerða í sumar og bankarnir ekki þurft að
breyta í miðjum leik reglunum sem þeir
sjálfir settu. Mikilvægt er að sýna aðhald
en þeir sem efni hafa á 90% - 100% lánum
eiga að hafa aðgang að þeim og það mun
væntanlega gerast á nýjan leik þegar Íbúða-
lánasjóður hækkar lánshlutfall sitt upp í
90% eins og viðbúið er að gerist á næsta ári.
Það er allra hagur að verð íbúða haldist á því
róli sem verið hefur, menn verða hins vegar
að vinna betur saman. Fólk þarf aðgang að
góðum lánum sem það hefur efni á að greiða
niður og bankarnir mættu aðeins vera sveigj-
anlegri t.d með því að bjóða viðskiptavinum
í ákveðinn tíma lán þar sem vextir eru aðeins
greiddir en ekki höfuðstóll.“
Að skilja eitthvað eftir sig
Á næstu árum mun hafnarsvæðið í Reykjavík
breyta um svip og fá nýtt hlutverk. Fram-
undan er mikil uppbygging frá Ánanaustum
og alla leið í Austurhöfn, þar sem nýja
tónlistar- og ráðstefnuhúsið verður í öndvegi
en framkvæmdir við byggingu þess eru nú
að fara af stað af alvöru. „Ef vel tekst til með
þessar framkvæmdir geta þær gert Reykjavík
að einni fallegustu borg Evrópu og það er
sannarlega gaman að taka þátt í að gera svo
metnaðarfull áform að veruleika. Um þetta
gildir sama og knattspyrnuna þar sem maður
vill alltaf vera í vinningsliðinu og vinna sæta
sigra. Það er gaman að byggja hús sem setja
svip bæinn. Meginmálið er að skilja eitthvað
eftir sig,“ segir Bjarki.
Í viðtali við Morgunblaðið fyrr á þessu
ári sögðu Arnar og Bjarki að í viðskiptum
væri mikilvægt að velja sér samstarfsmenn
og það væri alltaf svolítil kúnst að finna þá.
En hvernig lærist að velja rétt samstarfsfólk?
Innsæið kemur með árunum, segir bræð-
urnir, og vísa þar til góðrar reynslu úr knatt-
spyrnunni.
„Það er mikilvægt að vera í samstarfi
við fólk sem starfar eftir sömu gildum og
maður sjálfur og hefur metnað og vilja til
að sjá árangur af störfum sínum. Fólk má
ekki láta græðgina blinda sig, slíkir ein-
staklingar heltast fljótt úr lestinni. Auðvitað
hefur maður kynnst svörtum sauðum og
eftir að hafa brennt sig í viðskiptum við
slíka einstaklinga gefur maður þeim ekki
annað tækifæri. Í viðskiptum jafnt sem
knattspyrnu gildir að takast á við andstæð-
inginn af heiðarleika, þannig að báðir séu
sáttir þegar gengið er af velli – því til næsta
leiks gæti verið blásið strax á morgun,“ segir
bræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir
að síðustu.
DV-húsið við Þverholt í Reykjavík er í eigu Hanza-hópsins en fyrirætlanir
hópsins eru þær að breyta húsinu verulega og bæta við tveimur hæðum.
Tillaga að nýbyggingu að Strandgötu 28 í Hafnarfirði, verkefni
sem er í vinnslu hjá Hanza-hópnum.
A T H A F N A M E N N
������������������������������������������������������
��������������������������������� �������� ��������������
������� ������������������������������������������������
���������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
���������������������������������
����������������������������������������������������������������
����������������������������������