Frjáls verslun - 01.09.2006, Síða 96
96 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
FÓLK
Sig rún Ragna Ólafsdóttir, viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi,
er stjórnarformaður Deloitte,
sem er þekkingarfyrirtæki með
um 200 starfsmenn á Íslandi:
„Ég hef starfað hjá Deloitte frá
árinu 1999 sem endurskoðandi
og einn af eigendum félagsins og
er nýtekin við sem stjórnarfor-
maður. Auk stjórnarformennsk-
unnar gegni ég starfi endurskoð-
anda og leiði starf fjármálahóps
Deloitte, en markmið þess hóps
er að byggja upp sérþekkingu á
fjármálafyrirtækjum og þörfum
þeirra. Starf mitt sem stjórnar-
formaður felur meðal annars í
sér meiri samskipti við Deloitte
á alþjóðavísu og virkari aðkomu
að stefnumótun og eftirfylgni
alþjóðastefnu Deloitte sem er
löguð að hverju landi fyrir sig.“
Mikill vöxtur hefur verið í
starfsemi Deloitte og sérþekk-
ing og sérhæfing aukist að sama
skapi: „Það er mjög mikilvægt
að við stækkum og sérhæfumst
og séum í stakk búin til þess
að þjóna atvinnulífinu og þeim
öru breytingum sem eiga sér
stað. Má með sanni segja að
starf okkar hjá Deloitte sé fjöl-
breytt og ég held að fólk geri sér
ekki alltaf grein fyrir því hversu
fjölbreytt og lifandi þetta starf
í raun er. Ég heyri stundum
talað um að starfið sé einhæft
en því fer víðsfjarri. Eftir því
sem þekking hefur aukist innan
fyrirtækjanna sem við þjónum
þá hefur starf okkar orðið fjöl-
breyttara og ráðgjafahluti þess
stækkað. Fyrir mig hefur það
verið mjög áhugavert og gefandi
að kynnast og fá að vinna með
svona mörgum, bæði í hópi við-
skiptavina og samstarfsmanna,
hvort heldur sem er hér á landi
eða erlendis.“
Eiginmaður Sigrúnar Rögnu
er Eiríkur Jónsson, viðskipta-
fræðingur og fjármálastjóri hjá
Endurvinnslunni, og eiga þau
tvíburasynina Kristján Óla og
Árna Birgi: „Áhugamálin eru
mörg og því miður er eins og
tíminn í sólar hringnum dugi
aldrei til þess að koma öllu í verk
sem hugurinn stendur til. Við
erum öll mikið fyrir útivist og
ferðalög. Golf tekur sífellt meiri
tíma hjá mér og fjölskyldunni
og einnig áttum við nokkrar
frábærar ferðir í sumar í laxveiði
með fjölskyldu og vinum. Við
eigum hús í Stykkishólmi ásamt
fjölskyldu minni og þar þykir
okkur ákaflega gott að vera.
Stykkishólmur á orðið stóran
hlut í mér, þar er gott mann-
líf, sundlaug og golfvöllur. Þá
finnst mér mjög gaman að elda
góðan mat og halda smáveislur
af og til.
Fyrstu borgarferðina með syn-
ina fórum við síðastliðinn vetur
og varð London fyrir valinu. Það
kom okkur hjónunum skemmti-
lega á óvart hversu gaman var
að upplifa London með augum
strákanna og nú bíða þeir bara
eftir að verða boðið til New York
eða Parísar.
Haustið 2005 tók ég ákvörðun
um að láta draum minn um frek-
ara nám rætast og hóf MBA-nám
við Háskólann í Reykjavík sem ég
lýk í vor. Námið er búið að vera
frábær reynsla og gaman að setjast
aftur á skólabekk í þeim frábæra
skóla sem Háskólinn í Reykjavík
er að mínu mati. Alþjóðlegt yfir-
bragð kennslunnar og frábærir
samnemendur og kennarar. Ég
bætti náminu við það sem ég var
að gera áður og þá er eins gott að
eiga góða að. Eiginmaðurinn og
fjölskyldan hafa stutt mig og hvatt
og er það ómetanlegt.“
TEXTI:
HILMAR KARLSSON
MYNDIR:
GEIR ÓLAFSSON
stjórnarformaður Deloitte
SIGRÚN RAGNA ÓLAFSDÓTTIR
Sigrún Ragna
Ólafsdóttir:
„Áhugamálin eru
mörg og því miður
er eins og tíminn í
sólarhringnum dugi
aldrei til þess að
koma öllu í verk sem
hugurinn stendur til.“
Nafn: Sigrún Ragna Ólafsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
18.8. 1963.
Foreldrar: Ólafur Kristjánsson
og Ástrós Þorsteinsdóttir.
Maki: Eiríkur Jónsson.
Börn: Árni Birgir, 9 ára, og
Kristján Óli, 9 ára.
Menntun: Viðskiptafræðingur
og endurskoðandi.