Tímarit Máls og menningar - 01.05.1943, Page 7
TÍMARIT
MÁLS OG MENNINGAR
Maí 1943. 1. hefti Ritstjóri: Kristinn E. Andrésson
FJÁRSÖFNUN FYRIR RAUÐA KROSS
SOVÉTRÍKJANNA
„Fjóðir þær, sem byggja Ráðsljórnarríkin, hafa á þessum miss-
erum orðið að sæla þyngr^ búsifjum en nokkur stríðsþjóð önnur.
Hvergi hefur eyðing verið jafn gagnger á landi, auðæfum, mann-
virkjum, menningarverðmætum og mannslífum. Þúsundir borga og
bæja hafa verið lagðar í rústir, milljónir óvopnfærra íbúa landsins
eru heimilislausir eða líf þeirra í hættu af hungri og neyð. Þó hafa
engar hörmungar brotið kjark né viðnámsþrótt og sigurvilja þess-
ara þjóða, svo hugprýði þeirra er viðbrugðið um heim allan.
Vér Islendingar höfum hingað til ekki verið nein undantekning
þeirra manna, sem kunna að meta hetjuskap og fórnarlund. Vér
höfum áður í stríði þessu sýnt í verki, að vér látum oss ekki einu
gilda þá hluti, sem eru að gerast í heiminum, sýnt, þótt í litlu hafi
verið, að vér gátum ekki setið með öllu aðgerðarlausir hjá, meðan
aðrir lögðu lífið í sölurnar í baráttunni fyrir frelsi sínu. Og hví
skyldum vér ekki eins og aðrir menn láta í Ijós aðdáun okkar á því,
sem göfugast er í fari hins stríðandi mannkyns á þessum örlaga-
tímum? . .. .“
Með þessum orðum hefst áskorun til Islendinga, undirrituð af
yfir 70 málsmetandi mönnum, háskólakennurum, alþingismönnum
af öllum flokkum, skáldum og listamönnum, biskupi, fræðslumála-
stjóra, skólastjórum, formönnum ýmissa félaga, útvarpsstjóra,
bankastjórum Landsbankans, búnaðarmálastjóra og öðrum, um að
styðja söfnun fyrir Rauða kross Sovétríkjanna, er fulltrúaráð verk-
lýðsfélaganna hefur gengizt fyrir. Vill Timarit Máls og menningar