Tímarit Máls og menningar - 01.05.1943, Blaðsíða 81
TIMARIT MALS OG MENNINGAR
75
garðar á floti í vatnssvakka, — þetta var stemmning laugardags-
morgunsins. Við vissum að pósturinn myndi koma austanað ó
iaugardagskvöldið og halda vesturyfir Skeiðarársand á sunnudag-
inn, hvað sem á dyndi. Og við byrjuðum morguninn með fræðileg-
um samræðum um Skeiðará. Regninu hellti ennþá niðurúr hreyf-
ingarlausum skýjamekkinum. Hvert sem litið var, grámaði fyrir
pollum, ám og lækjurn, og vatnagnýrinn var orðinn fastur í eyr-
unum á okkur, einsog við hefðum fæðzt með hann.
Skyldi nú Skeiðará ekki vera orðin ófær?
Ja, það fer nú að verða á takmörkum.
Ekki vil ég nú segja það. Ennþá meiri sýndist hún vera hérna
um árið, þegar liann Sigfús Johnsen fór yfir hana. Þá flóði hún
vestureftir öllum sandi, næstum eins langt og við sáum héðan að
heiman.
Fékk hann hana ekki djúpa?
Ekki ákaflega. Hún getur verið grynnri í miklum rigningum en
í þurrkatíð. Þegar hún er í miklum vexti, ryður hún undir sig möl
og sandi og flákar sig útyfir breitt svæði, og þá er síður hætt við
bleytum, því að straumþunginn þjappar niður vatnsbotninum. Hún
er stundum dýpri í þurrkum. Þá hættir henni við að grafa sig niður
í mjórri ála.
Svo er.
Svona gat huggunin leynt sér lengi austurí Oræfum.
Vatnið hélt áfram að streyma úr loftinu stanzlaust þartil fram-
undir miðmunda. Himinn og hauður sýndust runnin saman í einn
gróan vatnsmökk. Eh rétt fyrir miðmunda rauf hann loksins gat á
skýjakafið í norðvestri, svo að sá dinnnbláan heiðglugga yfir
Skaftafellsfjöllunum. Dimmblá heiðríkja er fyrirboði þerris. Undir
kvöldið var vatnagnýrinn farinn að fá aukahreim af fjallátt. Enn-
þá var þó loftið mjög skýjað. Glugganum í norðvestri gekk illa
að stækka. Við töluðum um það. hvort það myndi setja niður í
Skeiðará í nótt.
Svo kom sunnudagsmorguninn. Loftið einsog í fornum annálum
fyrir mikla mannskaða: Hvergi skýhnoðri á himni, — hægur norð-
austan fjallablær, glitrandi sólskin og heitt í veðri. Það hafði sett
svolítið niður í vötnunum. Og nú fyrst lagði það af tilviljun í eyru