Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1943, Side 21

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1943, Side 21
TIMARIT MALS OG MENJJINGAR 15 arþættinum, — og samtal þeirra Borgens I Valur Gíslasón) á eftir. Það var auðvelt að gagnrýna báða, en samt, þetta var sjónleikur, maður gleymdi hvar maður var staddur. Altaristafla Guðmundar Thorsteinssonar, sem hann gerði helsjúk- ur og dó frá hálfunninni, er eitthvert helzta kristilegt listaverk unnið af Islendingi á síðari tímum; samt mjög óíslenzkt verk. Myndin er gerð undir sterkum áhrifum ítalskrar helgimyndlistar, þó þessi gerð altaristöflu sé að vísu prótestantiskt, meira að segja síð-prótestant- iskt fyrirbrigði. Hið ítalska landslag í haksýn töflunnar hefur sama blæ og almenningur kannast við, t. d. úr la Gioconda (Mónu Lísui og Kvöldmáltíðinni. En það er ekki aðeins landið, sem er ættað úr ítalskri miðaldalist, heldur eiga mannamyndirnar einnig kyn þang- að, ég held einna helzt til hinna svokölluðu „frumstæðu“ meistara Síena-skólans (13. og 14. öld, Duccio og þeir). Taflan er merkileg- ur vottur um hrifningu gáfaðs norræns listamanns af fornri suð- rænni skólavenju, án þess að vera þó eftiröpun, — öðru nær, í mynd þessari er ríkari en nokkru sinni sá persónulegi töfrablær. sem aldrei var fjarri handaverkum þessa manns. Frá sjónarmiði efnisins geymir myndin ýmsa þáttu, sem freisting væri að rekja í lengra máli en hér er kostur. Það hvílir yfir henni allri einhver á- takanleg tristesse, dapurleiki hugans, sjúkleg örvæntingarkennd — eins og reyndar öllum kristnum skáldskap, þar sem kraftaverkið er gert að höfuðatriði, hin yfirnáttúrlega, andskynsamlega lækning. I einu brýtur taflan mjög alla rétttrúaða hefð og jaðrar við „sið- spillingu“: lausnarinn er vera einhvers staðar milli karls og konu, og þó nær því að vera kona, fögur en óskyld mannlegu lífi, yfir það hafin, meðaumkvunarlaus. Milli þessarar upphöfnu guðlegu myndar og mannlegrar lítillækkunar skapast í töflunni ósamrýman- legar andstæður. Vilji menn sjá mynd, þar sem skyldleikasamband- ið milli „hins háa“ og „hins lága“ er gert að höfuðatriði, gagnstætt því, sem hér er, þá er ráð að skoða litla mynd eftir Kjarval á múr í Landsbankanum (hægra megin við biðstofudyrnar uppij, af and- liti sjómanns og höfði fisks. En horfi maður á víxl af andliti lausn- arans í andlit hins blinda á altaristöflu Muggs, finnst glöggt, að milli þessa tvenns, hins guðlega og hins mannlega, er engin sam- eining hugsanleg í þessari töflu. aðeins sívíkkandi óbrúanleiki -
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.