Tímarit Máls og menningar - 01.05.1943, Blaðsíða 75
I'ÓRBERGUR ÞÓRÐARSON:
VATNADAGURINN MIKLI
Sumarið 1933 var hér sunnanlands eitthvert mesta vætusumar,
sem elztu menn muna. I Austur-Skaftafellssýslu rigndi meira eða
minna í tuttugu daga í ágústmánuði, og fyrstu tíu dagana í septem-
ber féll þar í átta daga regn úr lofti, oftast helliregn.
Þetta regngráa og sólarlitla sumar vorum við Margrét kona mín
á ferð um Austur-Skaftafellssýslu frá 12. júlí til 10. september. Við
fórum sjóleiðina austur, en ætluðum landveginn til baka, því að
ferðir okkar liafði aldrei borið um þær slóðir áður.
Miðvikudaginn 30. ágúst, 28 mínútum eftir hádegi, hófum við
ferðina vesturá bóginn frá Hala í Suðursveit. Þann dag héldum
við útyfir Breiðamerkursand og náðum að Fagurhólsmýri í Oræf-
um klukkan níu um kvöldið. Þar héldum við kyrru fyrir í fjóra
daga hjá Ara hreppstjóra Hálfdanarsyni, merkum manni og marg-
fróðum. Og það var rautt septembertungl yfir sjónum á kvöldin.
Frá Fagurhólsmýri var ferðinni heitið að Svínafelli í Óræfum. Það
mun vera um þriggja thna lestagangur. En þaðan var gert ráð fvrir
að við fengjum hesta og fylgdarmann vesturyfir Skeiðarársand.
Við lögðum af stað frá Fagurhólsmýri mánudaginn 4. septem-
ber klukkan hálfeitt. Ari hreppstjóri léði okkur hesta innað Svína-
felli og Helgi sonur hans varð til að fylgja okkur. Þennan dag var
þykkt loft, kafið skuggalegum haustþunga, og var sýnilegt, að hann
var að draga í sig langæja stórrigningu. Mestallan daginn gekk á
skúrum, ýmist í logni eða með vestan andvara. Það hafði rignt um
nóttina og daginn áður frá klukkan fjögur, og allir lækir og minni-
háttar ár í Óræfum höfðu vaxið að sýnilegum mun, en stærri vatns-
föll leyna lengur vexti, sem kunnugt er.
Það bar ekkert við öðru hærra á leið okkar innað Svínafelli fyrr
en við komum að svonefndri eystri Virkisá, sem rennur fyrir austan
Svínafell, milli þess og Sandfells. Það rigndi alltaf öðruhvoru. Út-
litið varð æ þungbúnara eftir því sem á daginn leið. Fjöllin stóðu
vatnsgrá uppí þokusvakkann. Og það kom ekki yfir mig neinn hærri