Tímarit Máls og menningar - 01.05.1943, Qupperneq 80
74
TIMARIT MALS 00 MENNINGAR
stundir að svamla yfir hana. Dæmi fundust einnig þess, að varla
hafði munað hárshreidd, að hún sópaði ferðamönnum úti hafs-
auga, ef þeir voru staddir á sandinum, þegar hin feiknlegu Skeið-
arárhlaup brutust fram undan Skeiðarárjökli.
Svona ræddum við um Skeiðará dag eftir dag frá öllum hliðum
og sjónarmiðum. Þó að við hvörfluðum að öðrum umtalsefnum
stund og stund, soguðumst við áður en minnst varði aftur inní
straumgný þessarar ferlegu móðu. Vatnaþekking Austur-Skaftfell-
inga er heil fræðigrein, sem seint verður lærð til hlítar. Og hver
ný ræða um Skeiðará flutti okkur einhverja nýja þekkingu.
En þrátt fyrir allan ægileik Skeiðarár báru j)essar sprettiræður
okkar alltaf að einni huggun. í Skeiðará hafði aldrei maður
drukknað. Ju-ú! Einhver gömul sögn var ennþá á reiki í Svínafelli
um mann, sem hafði drukknað í ánni. En jiar með var allt talið.
Hinsvegar kunnu menn nokkur dæmi um drukknanir í Jökulsá á
Breiðamerkursandi.
Hvernig stóð á því, að Jökulsá skyldi hafa orðið fengsælli á
mannslífin en Skeiðará?
Jökulsá rann alltaf í einni hreiðu og hafði grafið sér fastan og
djúpan farveg niðurí sandinn. Auk þess var hún meira vatnsfall
og ennþá straumharðara en Skeiðará. Skeiðará flæddi yfir breið-
ara svæði, rann venjulega í mörgum álum og féll að öllum jafnaði
á sæmilegum brotum.
Næsta dag, fimmtudaginn 7. septemher, var regnúði framað
klukkan sjö um kvöldið, en þá gekk hann í bullandi óveður og
rigndi í sífellu alla nóttina. Daginn eftir hellti úr lofti þrotlaust og
alla næstu nótt. Regnið dundi á húsþökunum og streymdi í lækjum
niður þakrennurnar. Lækjarhjalið í giljunum var að hrevtast í
þungan árnið. Grösin og skógurinn í brekkunni hníptu litverp.
Grasmaðkarnir flúðu unnvörpum uppúr jörðinni og engdust inn-
um gluggann á svefnherberginu okkar — hann var niðurundir
jörð uppað brekkunni — og leituðu sér athvarfs niðrií rúmunum
og nutu þar óafvitandi gestrisni, Jiartil maður fann þá skríða við
sig beran. Og við töluðum mestallan daginn um Skeiðará, sem nú
jiandi sig yfir meiri og meiri víðáttu vesturá sandinum.
Dimmgrátt loft. regndynur, niðandi vatnagnýr, tún, hlöð og