Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Síða 17

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Síða 17
KLUKKAN HENNAR ÖMMU 207 mín dó þegar ég var á öðru ári. faðir minn hafði heitið Jón og verið sjómaður. Amma sagði mér eitt sinn. að liann hefði farizt missiri áður en ég var í heiminn borinn; en þegar ég spurði hana um ætt hans og uppruna, sló hún jafnan út í aðra sálma eða þagði sem fastast. Á Græna- teigi var aldrei minnzt á foreldra mína, en samt var ég ekki í neinum vafa um að hjónin kynnu sögu þeirra betur en ég; og úr því að hvorki þau né amma vildu rifja hana upp, þá hlyti hún að vera mér á einhvern hátt til minnkunar. Það bar við stöku sinnum, að vitneskjan um munað- arleysi mitt hitaði mér í hamsi, — ég skyldi sýna þeim öllum hvað ég gæti, ég skyldi kaupa mér orgel þegar ég væri orðinn stór, aka því á vörubíl inn dalinn, nema staðar á hverjum bæ og fylla gervallan himininn máttugu tónaflóði. Hitt var þó oftar, að ég sætti mig við hlutskifti mitt og lézt ekki taka eftir því að Aöalheiður gældi öðruvísi við mig en Ing- unni og Bjössa. Ég fékk nóg að borða, mér leið vel, aldrei skyldi það spyrjast, að ég væri vanþakklátur drengur. Austur í Rússlandi dóu börn úr sulti, sagði Sighvatur frændi, hrundu niður eins og flugur. Nú má ekki skilja orð mín svo, að ég hafi ekki átt margar hamingju- stundir á Grænateigi. Eg hef oft hugsaö um það síðar, að ég mundi hafa farið mikils á mis, ef ég hefði eingöngu alizt upp í þorpi. Mér var hlýtt til fullorðna fólksins og þótti fjarskalega vænt um hestana, einkum Stjörnu og Faxa. Auk Bjössa litla og Ingunnar lék ég mér oft við heim- alninginn og kálfinn, hundinn Sám og fressköttinn Kampalang. Lóu og spóa þarf ég varla að minnast á, né heldur þúfutittling, maríuerlu og stelk, öll börn hafa yndi af fuglum. En þetta þriðja sumar mitt á Græna- teigi eignaðist ég nýja vini. Það voru blómin. Eg var einlægt að koma auga á blóm sem ég hafði ekki veitt neina al- hygli áður, blóm á túni og engi, blóm í hlíÖum og holtum, melablóm og klettablóm, angandi smáblóm í leynum innan um skriðkjarr og víði- runna. Sum þessara blóma urðu mér undarlega nákomin, og því hug- fólgnari sem þau spruttu á hrjóstrugri stað. Ég sá þau lyftast upp úr jörð- inni, upp úr grjótinu, krónur þeirra skinu við sólu í hógværum litum og drúptu votar undir lágskýjuðum himni. Ég sá þau glata æsku sinni, legg- urinn svignaði, krónan minnti á andlit önnnu minnar, fyrr en varði voru þau hliknuð og visnuð. Ævi þeirra, líf allra sem fæðast og deyja, var mér sama ráðgáta þá eins og í dag. Það vildi til, að ég talaði við blómin, spyrði þau í hálfum hljóðum hvort þau færu til Himnaríkis þegar þau
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.