Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Qupperneq 27

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Qupperneq 27
GUÐMUNDUR BÖÐVARSSON 217 mannasjónum, eða gamlar konur, en þó salt jarðar, fólk sem setti sögur og kvæði efst lífsgæða hér á jörð, lifði og dó með fræði á vörum. Hjalið um lítil og stór skáld er að því leyti blekkíng, að skáldskapurinn er í sjálfu sér stór, og sá sem temur sér að sjá veruleikann í skáldskap og skáldskap í veruleikanum hefur eignast stór sjónarmið í lífinu, hin stóru sjónarmið lífsins. Meiripartur þess skáldskapar sem venjulegur íslendíngur inndrekkur með móðurmjólkinni, og man leingst, eru vísur og stef eftir ónafngreind skáld, brot úr þjóðarskáldskap sem einginn veit höfund að, en er venju- lega djúpur á einfaldan hátt, skemtilegur í orðalagi, og af slíkum hagleik saman settur að þar verður hvergi orði umþokað til bóta; þessi skáld- skapur er í sérhverri kynslóð einlægt jafnnýr og úngur og góður, líkur þeim dýrgrip sem fer í björg og brotnar ekki, fer í eld og brennur ekki, fer í sjó og sökkur ekki. Skáld á fslandi sem aldrei hlutu sögulega frægð hafa jafnan verið öld sinni þarfir, og sumir þarfari en hinir sem hærra nafn hlutu síðar. Og ljóðagerð sýsluskálda, sveitarskálda og þeirra skálda sem miðuðu kveðskap sinn við takmörkuð svæði eða einhvern sérstakan hóp manna, til dæmis vermenn í einhverri veiðistöð, þessi skáldskapur hefur eigi síður en verk þjóðskálda sem svo eru nefnd verið fjörgjafi menníngar á íslandi og sannur lífsþáttur. Og þann dag sem skáldskapur á fslandi fer að verða sérfræðíngavinna af því tagi sem að- eins skírskotar til sérfræðínga, án lífræns sambands við þjóðina, þá er hætt við að sú almenn arfleifð Ij óðs og sögu sem verið hefur séreign ís- lendínga sé öll — og þá væntanlega eitthvað annað og betra komið í staðinn. Guðmundur bóndi Böðvarsson á Kirkjubóli hefur tekið við þessari arfleifð íslands, sem framar öllu er eign íslensks almenníngs, en ekki tómra frammámanna eða frammúrmanna; þessi yfirlætislausi en hauk- eygi maður hefur geingið til salar í hinu aldna húsi og lagt fram þann verka sem skipar honum öndvegi þar með sjálfsögðum rétti. Skáldskap- ur hans er jafn náttúrlegur og blátt áfram og grasið sem vex á jörðinni. Og enn höfum vér fyrir augum fagnaðarríkt dæmi þess hvernig óbreytt- um manni á fslandi er innborið að skynja tímann og skapa líf sitt í birtu skáldskaparins, hefja veruleik lifs síns til sjálfstæðrar listsköpunar; og það er einmitt þetta eðli íslendíngsins sem því hefur valdið að ísland stendur nær iniðbiki heimsins en útjaðri. Hver sem blaðar í óði skálds-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.