Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Síða 37

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Síða 37
HÓTELGESTIR 227 henni nákvæmlega jafn ókunnuglega fyrir sjónir. ÞaS var eins og borg- in hefði verið tæmd á meðan hún var í burtu og fyllt síðan á ný með bláókunnugu fólki. Hún hafði ekki komið auga á einn einasta mann sem hún kannaðist við. Þetta var allt önnur borg, og þótt nöfnin á götuskilt- unum væru þau sömu, var eins og þau hefðu misst alla merkingu og hengju þarna bara fyrir einhverja óskiljanlega gleymsku. Það hafði jafnvel komið fyrir að hún villtist og varð að spyrja ókunnugt fólk til vegar í hverfi, þar sem hún hafði búið í meira en ár. Allt hafði breytzt, og þó hafði engu verið breytt. Þannig var tíminn, þessi þensla í rúminu sem gerir alla viðskila við allt. „Ég er orðin of gömul til að vera að þessu svermeríi fyrir dauðum hlutum,“ hugsaði hún og leit nú í fyrsta skipti á fylgjunaut sinn sem var ennþá að grúska í matseðlinum. Hann hafði hvít hár á augnalokunum, og þegar hann horfði svona niður fyrir sig, var eins og allur svipur dytti úr andlitinu. Hún fór að rifja upp fyrir sér, hvort hún hefði ekki ein- hverntíma horft á hann sofandi, en gat ekki munað það. Það var annars skrítið, að hún skyldi aldrei hafa horft á hann sofa! — Við skulum koma, sagði hún. Hann var að borga reikninginn, þegar þau heyrðu fyrstu hljóðin, en þau grunaði ekki að neitt sérstakt væri um að vera og voru komin út á götu — hún spölkorn á undan — þegar þau sáu manninn. Það var eins og eldibrandi væri slöngvað yfir götuna, og þetta kom þeim á óvart. Þau voru dálitla stund að átta sig á því, að þetta var maður. Það logaði upp úr bakinu á honum, og hann hljóp hálfboginn upp á gangstéttina — hljóp í hringi og æpti meðan eldurinn magnaðist í klæðum hans. Þeir sem áttu leið um götuna stönzuðu og horfðu á . . . og úr hliðargötunum bættist við fleira fólk sem runnið hafði á hljóðin. Menn stóðu sljóir og dolfallnir og viku hæversklega til hliðar fyrir manninum sem var að brenna — svo hann gæti hlaupið. Hann hljóp bognari og bognari í hringi sem sífellt urðu styttri — Loks var eins og eldurinn sligaði hann, og hann þrúgaðist niður á stéttina með lágu kveini. Fólkið þrengdi sér inn á hann frá öllum hliðum eins og svartur flaumur, og hann hvarf sjón- um þeirra. Síðan ríkti djúp þögn og algjört atburðaleysi, sem rofnaði ekki fyrr en allt í einu að fylgjunauturinn sagði:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.