Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Síða 60
250
TIMAKIT MALS OU MENNINGAK
Klinberg próíaði greinil þeirra svertingjabarna, sem höfðu flutt frá
suðurríkjum Bandaríkjanna til New York. Samtals voru það ca. þrjú
þús. börn, sem hann prófaði. Hann fann þá, að greindarvísitala barna
þeirra, sem höfðu verið lengst í New York, var hærri en greindarvísitala
liarna þeirra, sem höfðu flutzt nýlega frá suðurríkjunum. Það var greini-
leg samsvörun milli greindarvísitölu barnanna og þess, hve lengi þau
höfðu Iiúið í New York. Meðalgreind svertingjabarnanna í N. Y. var
líka mun meiri en í suðurríkjunum. Þau, sem höfðu verið í N. Y. í 6 ár
eða lengur, höfðu að meðaltali jafn háa greindarvísitölu og hvít hörn á
sama stað, þ. e. a. s. mismunurinn var svo lítill, að hann hafði ekki tölu-
fræðilegt gildi. Með tölufræðilegu gildi er átt við, að mismunurinn sé
svo stór, að liann geti ekki verið tilviljun einni að kenna.
Nú er það svo, að svertingjar í suðurríkjunum lifa við miklu bágari
kjör en í N. Y., þar sein kjör þeirra eru næstum því sambærileg við kjör
hvítra manna. Skólar svertingjanna eru líka miklu lélegri í suðurríkjun-
um en í N. Y.
Það virðist því réttmætt að ætla, að niðurstöður nefndrar rannsóknar
megi skýra með breytingu þeirri, er varð á kjöruin harnanna og aðstöðu
þeirra til menntunar, þegar þau fluttust til N. Y. Þegar hinn mikli munur
á aðstöðu svertingjabarna og hvítra barna var næstum þvi þurrkaður út.
var ekki lengur neinn misinun að finna á meðalgreind þeirra.
Hér væri að vísu hægt að setja fram þá mótbáru, að það hafi getað
verið greindustu svertingjarnir, sem fluttu frá suðurríkjunum til N. Y.,
og þá væri ekkert skrítið, að meðalgreind þeirra var jöfn meðalgreind
hvítra barna. Klinberg gætti þess að rannsaka, hvort þessi mótbára hefði
við rök að styðjast, og fann, að svo var ekki. Hann gerði samanburð á
skólaeinkunnum barna, sem bjuggu áfram í suðurríkjunum, og skóla-
einkunnum barnanna, sem flutlust til N. Y., eins og þær voru, áður en
þau fluttu. Hann fann þá, að meðaleinkunn barnanna, sem flutt böfðu.
var sú sama og þeirra sem fluttu ekki. Af því má ráða, að svertingjar
þeir, sem fluttu til N. Y., hafi að jafnaði ekki verið greindari en þeir.
sem eftir urðu.
Ameríski sálfræðingurinn, Garth, hefur líka gert fróðlega rannsókn á
greindarþroska barna af ólíkum kynþáttum.
Hann leitaði uppi fjölda barna af indíánaættum. Börnum þessum
hafði verið komið í fóstur eða þau höfðu vérið ættleidd af hvítum mönn-