Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Blaðsíða 12
Tímarit Máls og menningar
jörðinni litlar og elskulegar mannverur, sem lifa í þægilegu iðjuleysi og
heimsku sakleysi. Hann er ekki kominn í neitt sæluríki — þegar skyggja
tekur fyllast þessir jarðarbúar mikilli skelfingu og leita hælis hver sem betur
getur: þá kemur upp úr neðanjarðarranghölum og vinnusölum annað mann-
kyn, ljótt og grimmt og drepur dagsfólkið ef til næst og étur. Tímavélarfar-
þeginn kann sína skýringu: sú djúpa stéttaskipting sem H.G. Wells þekkir í
sinni samtíð hefur leitt til líffræðilegrar tvískiptingar mannkynsins og
hnignunar beggja tegunda:
Fyrir mörgum öldum, fyrir þúsundum kynslóða, hafði maðurinn rekið
meðbróður sinn út úr þægindum og sólskini. Og nú var sá bróðir að koma
aftur, gjörbreyttur.5)
Ekki tekur betra við þegar sögumaður flýr lengra fram í tímann um
miljónir ára. Hann hittir fyrir jörð án mannkyns og eru aðeins eftir
frumstæð lífsform í fáránlegum stærðum, enn síðar sér hann jörðina
deyjandi úr kulda. Otti við afleiðingar þess sem er að gerast í samfélagi
samtímans blandast hér saman við kosmískan ótta, sem H.G. Wells átti eftir
að kynda enn undir með því að láta Marsbúa fara tortímandi vísindum um
hið bjartsýna England Viktoríutímans í skáldsögunni War of the Worlds
(1897).
Spámannlegri reyndist sá brokkgengi höfundur Jack London í „Járnhæln-
um“ (Iron Heel, 1907). Enda lýsir hann einkum náinni framtíð: stéttastríði í
Bandaríkjunum 1912 — 1918, allsherjarverkfalli sem leiðir til þess að auð-
valdið sigar Járnhælnum, einskonar fasistasveitum, á verkalýðshreyfinguna,
þær taka völdin, stjórna með morðum og fangabúðum. Menn hafa átt næsta
auðvelt að finna ótal hliðstæður milli sögunnar og þess sem á þriðja og
fjórða áratugnum gerðist á Italíu og í Þýskalandi. Foringi Járnhælsins
segir:6)
Þegar þið réttið fram ykkar grobbnu sterku hendur eftir höllum okkar og
purpuraþægindum munum við sýna ykkur hvað afl er. Svar okkar verður í
drunum fallbyssnanna og ýlfri vélbyssunnar. Við munum kremja ykkur
byltingarmennina undir hæl okkar, og við munum traðka á andlitum ykkar.
Því er og spáð í Járnhælnum að myrkar aldir valds hans verði þrjár en að því
búnu hefjist gullöld sósíalismans.
Þessi tvö dæmi verða að nægja til vísbendingar um það, að nálægt
aldamótum, þegar framfaratrú allskonar hefur enn lítið látið á sjá, er einhver
sú loftvog að verki í skáldum, einnig minni spámönnum, sem bendir þeim á
óveður og hörmungar. En hinar frægu neikvæðu staðleysur í skáldskapar-
formi eru samt ekki skrifaðar fyrr en eftir heimsstyrjöldina fyrri.
242