Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Blaðsíða 70
Tímarit Máls og menningar
A fyrstu starfsárum sínum gerði stjórn Þjóðarflokksins margvíslegar
umbætur. Aflétt var banni á gagnrýnum ritum sem fyrri stjórnvöld höfðu
komið á og hætt var að ofsækja vinstrisinna. Komið var á ókeypis fram-
haldsmenntun og símaþjónusta og samgöngutæki voru þjóðnýtt. Stjórnin
lagði nýjan skatt á bandarísku og kanadísku báxít- og álfyrirtækin í landinu
í því skyni að vinna gegn efnahagskreppunni í landinu. Á vettvangi utan-
ríkismála kom Manley fram sem talsmaður Þriðja heimsins. Jamaíka lét að
sér kveða á þingum Sameinuðu þjóðanna og krafðist uppstokkunar á efna-
hagskerfi heimsins. Samskipti við næsta nágranna Jamaíka, Kúbu, jukust, og
stjórn Þjóðarflokksins lýsti ennfremur yfir stuðningi við frelsishreyfingar í
Afríku, sérstaklega MPLA í Angóla.
Erlendu námuvinnslufyrirtækin og Bandaríkjastjórn brugðust við þessari
þróun mála með því að grafa undan efnahagskerfinu í landinu og veita
Verkamannaflokknum, Jamaica Labour Party, sem var í stjórnarandstöðu,
leynilegan og opinberan stuðning. Álfyrirtækin kærðu skattaálögur stjórn-
arinnar fyrir þeirri deild Alþjóðabankans sem fer með deilur út af fjárfest-
ingum. Jafnframt tóku þau að flytja báxít- og álframleiðsluna frá Jamaíka til
annarra landa og hlutur Jamaíka í báxítútflutningi í heiminum minnkaði
verulega. Skrúfað var fyrir lán í Bandaríkjunum til Jamaíka og hvers konar
aðstoð dregin til baka. I bandarískum blöðum var ferðamönnum ráðið frá
því að ferðast til landsins og leiddi það til þess að ferðamönnum fækkaði
töluvert, en þeir höfðu aflað landinu mikilla gjaldeyristekna.
Þrátt fyrir þennan mótbyr vann Þjóðarflokkurinn glæsilegan kosninga-
sigur árið 1976. Sérstaklega var nú áberandi hve flokkurinn naut yfirgnæf-
andi stuðnings meðal verkalýðsstéttarinnar. Stjórn Manleys hélt áfram
umbótastefnu sinni, lagði nýja skatta á hátekjufólk, þjóðnýtti Barclay’s
Bank og tók upp viðskiptasambönd við austantjaldslöndin.
En nú tók að síga á ógæfuhliðina fyrir stjórn Þjóðarflokksins. Til að vinna
gegn efnahagskreppunni tók hún lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, 74
milljónir Bandaríkjadala, en það var sett að skilyrði að laun yrðu fryst,
gengið á Jamaíkadollarnum lækkað um 40% og dregið verulega úr ríkisút-
gjöldum. Lífskjör almennings fóru nú versnandi, Manley þótti hafa svikið
fögru kosningaloforðin. Umtalsverð spilling kom í ljós hjá ýmsum ráða-
mönnum í stjórnkerfinu, bæði fjármálahneyksli og leynilegar ofbeldisað-
gerðir gagnvart pólitískum andstæðingum stjórnarflokksins. Við þessar
aðstæður reyndist Verkamannaflokknum undir stjórn Edward Seagas auð-
velt að vinna fylgi lágstéttanna. I kosningunum 1980 vann hann yfirburða-
sigur, stjórnartíð Manleys var á enda.
Stjórn Seagas hefur síðan unnið samkvæmt rökfræði fjármagnsins, selt
fyrirtæki þau sem Manley hafði þjóðnýtt, „opnað markaðinn“ að fyrir-
300