Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Blaðsíða 77
„Bettah Nevah Come“
landi. Mælandi í kvæðinu er maður af kynslóð innflytjendanna á 6. áratugn-
um sem rekur sögu sína frá því að hann var verðmætt vinnuafl eftir stríðið
til þess er honum var ýtt til hliðar í núverandi atvinnuleysi og kreppu.
A nýjustu LP-plötu Johnsons, „Making History", eru tvö áhrifamikil
ljóð um málefni Karíbahafsins. Annað, „Reggae fi Radni“, er eftirmæli um
frelsishetjuna Walter Rodney frá Guyana sem myrtur var af hernum þar í
landi árið 1980. Hitt, „Reggae fi Dada“, er minningarljóð um föður
Johnsons en jafnframt hvöss ádeila á þær þrúgandi aðstæður sem almenn-
ingur á Jamaíka býr við. I nýlegu viðtali bendir Johnson á það að þær vonir
sem vöknuðu í upphafi stjórnartíðar Manleys séu nú að engu orðnar og þess
gæti líka í tónlistinni: „Eg trúi því að það sé samband á milli þess sem á sér
stað í samfélaginu á hverjum tíma og listrænnar tjáningar. Á Jamaíka gerist
ekkert. Þjóðfélagið færist úr einni kreppunni í aðra. Stundum heyrir maður
spennuna í tónlistinni sem tjáir þá átökin í samfélaginu, en yfirleitt er hún
einhæf og tilbreytingarlaus vegna þess að í samfélaginu gerist ekkert sem
hrærir upp í fólki. Það hugsar ekki um annað en að eiga fyrir salti í grautinn.
Meðan Manley var við stjórn var mikið rætt um sósíalisma, andrúmsloftið
einkenndist af byltingarsinnuðum eldmóði sem endurspeglaðist í tónlist-
inni.“
Þegar litið er til baka og þróun reggítónlistarinnar metin vekur fyrst
athygli hversu vel heppnaðan samruna innlendrar tónlistarhefðar og er-
lendra áhrifa þar er um að ræða. Erlendu áhrifin stuðla ekki að eftiröpun og
ósjálfstæði heldur verða þáttur í sérstæðri nýsköpun. Tónlistin og textagerð-
in varð til þess að blása nýju lífi í menningarhefð sem hvorki er skráð á
nótnahefti né bækur en hefur þróast meðal almennings mann fram af manni
öldum saman. Um leið endurspeglar textagerðin breytta sjálfsvitund þar
sem menningarleg vanmetakennd víkur fyrir stolti og sjálfsvirðingu.
Helstu heimildir:
Timothy White: Catch a Fire — The Life of Bob Marley, London 1983.
F. Ambursley og R. Cohen (ritstj.): Crisis in the Caribbean, London 1983.
Fred Halliday: „Cold War in the Caribbean“, New Left Reviewnr. 141, sept./okt.
1983.
V.S. Naipaul: The Middle Passage, London 1982.
Mervyn Morris: „People Speech — Some Dub Poets“, Race Today Review, Vol. 14
Nr. 5, 1983.
Neil Spencer: „The Age of Insurreckshan", New Musical Express, 17. 3. 1984.
Ernest Cashmore: Rastaman — The Rastafarian Movement in England, London
1979.
307