Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 16
Tímarit Máls og menningar hann gengur af göflunum og fremur sjálfsmorð. Það er ekkert val, ekkert fær framar truflað hið þægilega gervilíf „Fögru nýju veraldar". Skáldsagan „Við“ (My) eftir Rússann Evgéní Zamjatín var skrifuð árið 1920 á þriðja ári rússnesku byltingarinnar, sem var stórtækasta tilraun sem gerð hefur verið til að byrja á að færa staðleysuna inn í veruleikann. Sagan er ólík verkum Capeks og Huxleys að því leyti, að þar er áherslan ekki lögð á tækni og vísindi sem illan anda úr flösku sloppinn, heldur á valdið, hið takmarkalausa vald yfir einstaklingunum sem og á tilverurök þess. Þessi bók er ekki mjög þekkt, en hún hefur haft meiri áhrif á þær neikvæðu útópíur sem á eftir koma en einstakar bækur aðrar. George Orwell taldi líklegt að „Fagra nýja veröld“ væri að nokkru leyti stæling á „Við“.9) Munurinn er sá, segir Orwell í ritdómi frá árinu 1946, að „Við“ lýsir miklu dýpri skilningi á eðli valdsins, „óskynsemi" þess sem gerir valdið og grimmdarlega beitingu þess að markmiði í sjálfu sér. Um bók Orwells sjálfs, „1984“, var seinna sagt að hún stældi Zamjatín líka og mun vikið að þeim skyldleika hér á eftir. Zamjatín var vinstrisinni, einn þeirra „villumanna" (aðeins villumenn geta skrifað bókmenntir sagði hann), sem óttaðist snemma að bolsévíkar mundu teyma rússnesku byltinguna út í ógöngur alræðisins. Neikvæða staðleysu sína hugsar hann samt ekki endilega sem framhald sovétskipulags eftir 600 ár, enda var það rétt á bernskuskeiði. En hann þótti sjá fyrir margt undarlega vel árið 1920 — t. d. óhemjudýrkun á Velgjörðarmanninum, hinum mikla leiðtoga sem allt veit, þrælskipulagðar njósnir allra um alla, miskunnarlausa tortímingu allra andstæðinga og hlálegar kosningar þar sem allir endurkjósa Velgjörðarmanninn sem einn maður:10) Auðvitað er þetta ólíkt þeim óreiðukosningum sem fornmenn efndu til, þegar menn vissu ekki einu sinni hvernig kosningarnar myndu fara, svo hlægilegt sem það nú er. Hvað getur verið fáránlegra en að byggja ríki á fullkomlega óútreiknanlegum tilviljunum? Af slíkum dæmum hefur skáldsagan „Við“ í vitund manna fyrst og fremst orðið að grimmri viðvörun um þá möguleika, sem fólust þegar í sjálfu tilkalli bolsévíka til þess að þeir hefðu einir tök á réttum og vísindalegum skilningi á samfélagi og hreyfilögmálum þess. „Við“ gerist að nokkrum öldum liðnum í þaulskipulagðri borg úr gleri og stáli sem er einangruð frá umheiminum með grænum vegg og fær enginn að fara út fyrir. Hér hafa einstaklingurinn og frelsið verið þurrkuð út í þágu stærðfræðilega útreiknaðrar hamingju (stíll sögunnar er reyndar mjög mengaður stærðfræði). Eintök af mannfólki bera öll sama einkennisbúning, ganga undir númerum og ganga eftir klukku í einu og öllu: marséra saman í 246
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.