Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 37
Draumur um betri tíma hátt en við gerum. Kannski getum við einhvern tíma, þegar nóg verður til af öllu, þegar öll framleiðsla verður orðin sjálfvirk og vinnutíminn miklu styttri en nú, losað okkur við þennan meinlætafulla dugnað og gert út af við tímann? A þessari tillögu er einn galli. Ef hinn „lifaði tími“ er ekkert annað en atburðir sem við höfum reynt, þá er ekkert rúm fyrir framtíð. Því að atburðirnir sem ættu að mynda framtíðina hafa ekki átt sér stað. Þetta þýðir ekki að fólk með annars konar tímaskyn geti ekki hugsað fram í tímann. En það sem það hugsar er framhald þess sem er nú. Það hefur engan innihaldslausan tíma sem teygir sig áfram og er eins og óskrifað blað eða víðátta full af ónotuðum möguleikum, þar sem maður getur hugsað sér eitthvað sem aldrei hefur verið áður. Þetta fólk hugsar sér fremur það sem er framundan: það veit hvað það þarf að búa sig undir (vorharðindi til dæmis), það hefur reynslu af hvað getur komið fyrir (hallæri). En það hefur enga framtíð sem er opin fyrir hverju sem er, öllu sem maður getur ímyndað sér. Mannfræðingurinn Pierre Bourdieu segir frá andstöðunni sem ríkisstjórn Alsír mætti þegar hún hófst handa um að stöðva uppblástur með skógrækt. Aform hennar áttu að bæta uppskeruna á komandi árum, en í bili gerðu þau ekki annað en skerða beitilandið. Ávinningurinn var fólginn í alveg nýjum efnahagsaðstæðum sem eingöngu var hægt að ímynda sér. Það var engin leið að koma auga á hann nema maður ætti í hugarheimi sínum tóma framtíð, óhlutstæða, fjarverandi í nútíðinni. Það kom líka í ljós að sveitafólkið hafnaði yfirleitt áformum stjórnarinnar. En um leið og frönsku innflytjend- urnir höfðu tekið að nota sér tilboð ríkisins um trjáplöntun var ávinningur- inn orðinn sýnilegur — hann var kominn inn í nútíðina. Þá fyrst fengu alsírsku bændurnir áhuga á áætluninni, því að nú var hægt að leiða ágóða- vonina af raunverulegum aðstæðum. Hún var orðin eitthvað sem varfram- undan, hluti af „lifuðum tíma“. Þannig gefur línulaga tíminn okkur nokkurt frelsi. Hann skapar okkur skilyrði til þess að gera umbætur og láta okkur dreyma um betri tíð, til að gera áform um framtíðina. Þeir sem eru dæmdir til að lifa í nútímanum hafa aftur á móti afar takmarkaða möguleika til að móta framtíð sína. Þannig er bæði frelsi og kúgun í öllum gerðum tímaskynjunar, línu, hring og punkti. Stöndum við þá frammi fyrir óleysanlegum vanda? Eða getum við fundið leið til að blanda saman lífsnautn nútímans og sögulegu hug- myndaflugi um framtíðina — „listinni að lifa“ og „list hins (ó) mögulega"? Gunnar Karlsson þýddi Anders Johansen er norskur mannfræðingur. Greinin hér birtist í norska tímaritinu Samtiden, 3. hefti 1982, undir nafninu Utopien om nitid. 267
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.