Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 62

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 62
Tímarit Máls og menningar tóku leikarar sig saman og settu upp leikrit af miklum vanefnum, en hóparn- ir nutu ekki stuðnings af neinu tagi og lifðu aldrei lengi. Leikararnir höfðu flestir lifibrauð sitt af sjónvarpinu og því merka fyrirbæri sem á Kúbu var kallað novela radial og var leiknar framhaldssögur í útvarpi. Teatro Estudio sá dagsins ljós 1958. Það ár sendi hópurinn frá sér fyrstu stefnuskrá sína, en í henni var lýst áformum um að stofna „raunverulegt þjóðleikhús“ og sýna verk sem flyttu „mannlegan boðskap“. Fyrsta verkið sem tekið var til sýningar var Long Day’s Journey into Night, eftir Eugene O’Neill. Sýningin markaði tímamót. Fjórum mánuðum eftir sigur bylting- arinnar 1959 sendi Teatro Estudio frá sér aðra stefnuyfirlýsingu, þar sem lagst var gegn hugtakinu „listin fyrir listina" og lýst stuðningi við bylting- una. I kjölfar þessarar yfirlýsingar kom svo sýning á Góðu sálinni frá Sesúan eftir Bertolt Brecht. Ég var svo lánsöm að fá vinnu í þessu leikhúsi árið 1970 og starfa þar í fimm ár sem aðstoðarleikstjóri, lengstaf með Vicente Revuelta. Þá hafði hópurinn fengið inni á tveimur stöðum í Vedado-hverfi. Sýningar fóru fram í Hubert de Blanck-leikhúsinu, sem kennt er við merkan tónlistarfrömuð og píanista sem lést 1932. Æfingar fóru hinsvegar að mestu leyti fram í rík- mannlegri villu og stórum garði skammt frá leikhúsinu. Starfsfólk Teatro Estudio var rúmlega hundrað manns á þessum tíma. Allt starfsfólkið var í sama stéttarfélagi, vinnustaðurinn myndaði deild í stéttarfélagi kúltúrverka- manna, Sindicato Nacional de Trabajadores de la Cultura. Deildin kaus sér stjórn, sem var fulltrúi leikhússins gagnvart heildarsamtökunum og var stjórnin kosin á almennum fundum í leikhúsinu. Leikhússtjóri var og er enn Raquel Revuelta, systir Vicente, vinsæl og þekkt leikkona á Kúbu, og auk hennar stjórnaði málum hússins framkvæmdastjóri, sem skipaður var af Menningarráðinu, Consejo Nacional de Cultura. Þetta ráð var sett á laggirnar strax eftir byltingu og fór með yfirstjórn menningarmála allt til 1976, þegar sérstakt ráðuneyti var stofnað í þessu skyni, Ministerio de Cultura, og nú heyra öll leikhús undir það ráðuneyti. Málefni leikhússins, svosem verkefnaval og áætlanir, voru rædd á almennum fundum í leik- húsinu. Fundahöld af þessu tagi voru tíð, enda Kúbumenn gefnir fyrir að láta ljós sitt skína á fundum og ræða málin ítarlega og opinskátt — og á það ekki eingöngu við um leikhúsfólk. Sterk hópkennd og samstaða einkenndi andrúmsloftið í Teatro Estudio, þótt ekki væru allir alltaf sammála og oft væri þráttað á fundum. Tvær meginlínur voru ráðandi í verkefnavali leikhússins: annarsvegar að sýna sígild verk leikbókmenntanna, og hinsvegar ný, kúbönsk leikrit. Teatro Estudio var fátækt leikhús og aðstæður allar hinar frumstæðustu, einkum hvað varðaði tæknibúnað. Til dæmis var ekki hægt að hafa tvær sýn- 292
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.