Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 121

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 121
unnar þessa örlagadaga þegar lífið kenn- ir henni umburðarlyndi gagnvart ein- staklingnum og að sjá sjálfa sig í réttu hlutfalli við aðra. Sagan endar eins og hún hófst á því að afi er að svæfa krakkaskarann. Þrátt fyrir þær hastarlegu andstæður sem sagan hefur dregið upp er til tryggur staður í veröldinni og Heiða er búin að finna hann. Umsagnir um bœkur við útgerðina lamdi sjórinn varn- argarðinn, svo að brimið hreyttist upp á götu. Islenski fáninn barði miðjar fánastengurnar, sem fólk- ið hafði sett upp hjá sér þegar Island varð sjálfstætt ríki, og stengurnar hrukku til undan höggunum. Ofan úr blýgráum himninum steyptu mávarnir sér gargandi í leit að æti. (102) Abferb Sagan er sögð í þriðju persónu, þótt Heiða sé aðalpersóna, og sögumaður, hugsanir hans og skoðanir, eru alltaf nærri. Hann horfir með eftirsjá og nokk- urri beiskju yfir þetta horfna svið, enda er hann að afhjúpa goðsögnina um hina átakalausu bernsku. Þó er sagan mjög skemmtileg, bæði í stíl og stökum efnis- atriðum. Kannski er það einmitt þessi blanda af söknuði, sárindum og fyndni sem gefur sögunni sinn sérkennilega svip. Framan af er frásögnin ekki mjög myndræn, meira bein frásögn með stutt- um orðaskiptum eins og Guðrún notar mikið í fyrri bókum sínum. Þó er þessi saga strax dramatískari en þær. En þegar þungi frásagnarinnar eykst í seinni hluta bókarinnar verður hún jafnframt mynd- rænni. Til dæmis fær lesandinn enga mynd í texta af herberginu þar sem öll börnin sofa í upphafi, og raunar hefði meistara Þórbergi fundist öll lýsing á afahúsi óþægilega ónákvæm (hvað eru mörg herbergi uppi? sofa mamma og pabbi inni hjá krökkunum?). Hins vegar má taka upphaf lokakaflans með ljóð- rænni myndvísi sinni: Bærinn þeirra kúrði í hnipri fyrir fjarðarbotninum eins og hann hefði orðið fyrir höggi. Vestan Sama er að segja um lýsingar á tilfinn- ingum, þær verða dýpri og flóknari þeg- ar líður á söguna, og það kemur vel heim við boðskapinn sem er ekki síst sá að ekkert sé eins einfalt og okkur virðist. Sögumaður lýsir tilfinningum án þess að skýra þær, enda eru þær stundum svo mótsagnakenndar að engin leið er jafn- vel fyrir fullorðinn lesanda að setja á þær merkimiða. Til dæmis má benda á kenndirnar sem vakna með Heiðu þegar hún horfir á litla bróður sinn í handar- krika mömmu (bls. 57). Oft er gengið mjög nærri Heiðu og tilfinningasveiflum hennar lýst af dirfsku þótt öguð sé. Þetta er í samræmi við þá þróun sem barna- bókmenntir okkar hafa verið að taka undanfarin ár, höfundar þeirra hafa orð- ið óragari við að lifa sorg og gleði með persónum sínum. Ekki á þetta síst við bækur þar sem gera má ráð fyrir að höfundar vinni úr eigin bernsku, til dæmis Grösin í glugghúsinu eftir Hreiðar Stefánsson, Mömmustrák eftir Guðna Kolbeinsson og Lambadreng eft- ir Pál H. Jónsson. Að líkindum notfærir Guðrún sér líka ýmislegt úr eigin bernsku í þessari bók, atriði sem hún hefur jafnvel notað áður í bókum sínum, eins og stórfjölskylduna í I afahúsi, en eiga betur við hér enda vandlegar unnið úr þeim. Þó er það ekki hugsanlegur skyldleiki Guðrúnar og 351
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.