Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Side 42

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Side 42
Tímarit Máls og menningar sannleikann og Vilhjálmur lætur í ljósi efasemdir um hann, en Adso minnir hann á fjölmargar sannar setningar, sem hann, Vilhjálmur, hafi uppgötvað síðustu daga. Vilhjálmur lætur sér fátt um finnast og segir: „Eg hef aldrei efazt um sannleika táknanna, Adso, það er hið eina sem maðurinn ræður yfir til að átta sig í veröldinni. Það sem ég hef ekki skilið er afstaðan milli táknanna.“ (458) Hér er Vilhjálmur að gefa til kynna þá skoðun nafna síns — sem raunar var ekki frumleg — að setningar, þ. e. ákveðin röð af táknum, séu það eina sem getur verið satt eða ósatt og jafnframt eina hugsanlega viðfang þekkingar okkar. Jafnvel þegar við skynjum eitthvað beint, þá er það sannleiksgildi tiltekinnar setningar sem við vitum: þegar lesandinn skynjar hér og nú að það er hvítt blað með svörtum stöfum fyrir framan hann, þá er það sem hann veit að setningin: „Það er hvítt blað með svörtum stöfum fyrir framan mig“ er sönn. Um þetta — sannleiksgildi einstakra setnmga um einstaka hluti — efast Vilhjálmur ekki. Hann efast hins vegar um að til sé einhver sannleikur um samband hlutanna í veröldinni, sem hann orðar hér með því að tala um „afstöðu táknanna“. Litlu síðar orðar hann þessa sömu hugsun á hversdagslegri hátt: „Ég hef látið þvermóðskuna teyma mig, og fylgt eftir eftirlíkingu af reglum, þegar ég hefði átt að vita vel að það er engin regla í alheiminum." (459) Þess var áður getið að Ockham taldi að sannir dómar um orsakasamband séu ekki nauðsynlega sannir. Það er nánast þetta sem Vilhjálmur á við þegar hann segir að engin regla sé í alheiminum. Hugsuðir í hinni platónsk- aristótelísku hefð — til hennar má telja alla kristna og islamska fyrirrennara Ockhams á miðöldum — gerðu ráð fyrir því að skipan heimsins sé til sem hugsanir Guðs. Til hinna forgengilegu hluta þessa heims svara eilífar og óumbreytanlegar hugmyndir í huga Guðs. Og ekki nóg með það, þessar hugmyndir eru röklega og þar með nauðsynlega tengdar hver annarri á margvíslegan hátt: Guð getur ekki hugsað sér mann, til dæmis, nema hugsa sér dýr í leiðinni, og hann getur ekki hugsað sér eldinn án þess að hugsa sér hita eða vaxið án þess að hugsa sér efni sem bráðnar í hita. I stuttu máli: skipan heimsins og þar með talin náttúrulögmálin eru gefin í eitt skipti fyrir öll sem hugsanir Guðs. Eru þá ekki náttúrulögmálin nauðsynlega sönn? Gæti heimurinn verið öðruvísi en hann er? Grískir hugsuðir á borð við Platón, Aristóteles og Plótínos svara neit- andi: skipan heimsins er gefin í hugmyndum Guðs og Guð hlýtur að hafa þær hugmyndir sem hann í raun hefur, það væri óhugsandi að hann hefði einhverjar aðrar. Með nokkrum rétti mætti segja að hjá þessum Grikkjum sé Guð í senn sjálf skipan heimsins og hreyfiafl hans án efniviðarins sem skipað er. Svo notað sé líkingamál má segja að hann sé í senn byggingar- meistarinn og teikningin sem hann vinnur eftir. En hver á þá hugmyndina 176
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.