Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Page 118

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Page 118
Tímarit Mdls og menningar máta við bókina. Ymis konar hliðstæð- ur, mótsagnir og jafnvel lausir endar í frásögn hvetja til þess. Eru þetta kannski tvær hliðar á sama manni eða er annar raunverulegur og hinn óraunverulegur, kannski skáldskapur hins? En þannig virðist mér sagan ekki smella saman og því tilgangslaust fyrir mig að fjölyrða um það. Enginn yrkir í eyðurnar nema höfundurinn sjálfur. Og stundum finnst mér eins og of mikið sé ósagt í þessu verki. En þrátt fyrir þetta er hér höfundur á ferð sem er bæði listfengur og vand- virkur og ætlar sér ekki auðveldustu leið að settu marki — og gaman er að skoða vinnubrögð Alfrúnar þegar henni tekst sem best. Svava ]akobsdóttir HERRA FRJÁLS í MILLIRÍKJASÖGU Ein afleiðing vaxandi andúðar á hvers konar forræðishyggju nú á tímum er að gagnrýnendur veigra sér við að draga skörp skil milli „afþreyingarbóka" og „fagurbókmennta", sem stundum eru nefndar svo. Enda eru greinamörk þessi tilbúningur, skáldaður mælikvarði sem við notum til að nálgast einhvern mnn sem við þykjumst skynja og sem til er frá vissum sjónarmiðum, þótt hann sé háll sem áll er við reynum að kyrrsetja hann. Þessi hugarfarsbreyting hefur þó ekki komið teljandi raski á starf gagn- rýnenda, sem yfirleitt (og jafnvel ósjálf- rátt) láta stjórnast af þessari tvískipt- ingu; sinna fyrst og fremst fagurbók- menntum, en þegja kannski þunnu hljóði um vinsælustu verk bókamarkað- arins. Ekki finnst mér þó betra þegar beinlínis er snobbað fyrir reyfurum og ástarrómönum: það sé nú indælt að leggja frá sér „alvarlegar" bækur um stund og hverfa burt úr henni veröld. Með því er hreinlega alið á einum mesta harmleik nútímamenningar, þeirri út- breiddu goðsögn að ekki sé hægt að hvílast frá amstri hversdagsins, „slappa af“, og hugsa um leið eitthvað sem víkk- ar vitundina eða rótar til í rykugum afkimum hennar. Ef til vill ættu gagnrýnendur að láta svonefnd afþreyingarverk ganga oftar í gegnum sömu eldskírn og önnur verk, rýna í þau af sömu gaumgæfni. Ekki má þó slík gagnrýni (eins og stundum er raunin) einskorðast við að sýna hvernig verkin byggist á afturhaldssömum sjón- armiðum og breiði yfir mótsagnirnar í ríkjandi hugmyndafræði samfélagsins. Ein þessara mótsagna er nefnilega sú að afþreyingarverk, sem flest eru afbrigði einhvers konar cevintýra og hjálpa fólki að losna úr greipum hversdagsins, eru jafnframt viss afneitun þessa hversdags- lega veruleika. Slík verk fljóta iðulega á bældri þrá, löngun eftir annars konar mannlífi, samfélagi þar sem fólk er virkir gerendur, dálitlar „hetjur“, en ekki firrt- ir þolendur og hjól í vél sem ganga virðist fyrir hendi æðra og óskiljanlegs valds. Slík verk fela í sér uppreisn sem kæfir sjálfa sig. Hvernig slíkt gerist er ekki til umræðu hér, en þessar hugleið- ingar tengjast eftirfarandi umsögn, því söguhetjan sem í hlut á er að sumu leyti eins og lesandi sem tekst að gerast þátt- takandi bæði í ástarróman og reyfara. Islensk prísund Skemmst er frá því að segja að það eru ekki gagnrýnendur heldur rithöfund- 252
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.