Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Page 128

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Page 128
Tímarit Máls og menningar leiða einhver rök að svo ákveðnum hug- myndatengslum, en það gerir hann ekki. Sá sem les ritgerð Arna gaumgæfilega frá upphafi til enda hlýtur að verða steinhissa, þegar kemur að síðustu máls- grein aðaltextans. Par segir svo: „Það er þó alltof einfalt að segja, að Laxness hætti smám saman að vera róttækur. Tilgangur ritgerðarinnar hefur ekki eins mikið verið að sýna að þetta átti sér stað og að sýna hvernig og hversvegna.“ (127) Einsog ég benti á í ritdómi mínum, er markmið bókarhöfundar hér „skyndi- lega orðið allt annað en lýst var í upphafi bókarinnar", sem sé „að dýpka skilning- inn á þjóðfélagsskáldskap Laxness á millistríðsárunum“ (7). Þar er einnig skýrt tekið fram að Heimsljós (1937—4) „fellur utan marka rannsóknarinnar“. A þeim forsendum, með slíka takmörkun efnisins, verður varla hægt að skýra hvernig og hversvegna Halldór Laxness „hætti að vera róttækur". Enda er bók Arna ekki með neinu móti framlag í þá átt. Hins vegar hafa aðrir fræðimenn hreyft því máli, seinast — að því ég best veit — Svisslendingurinn Aldo Keel í doktorsritgerð sinni Innovation und Restauration. Der Romancier Halldór Laxness seit dem Zweiten Weltkrieg (Basel/Frankfurt am Main, 1981). Árni virðist nú í „Athugasemdum“ sínum smávegis reyna að bæta úr þessu með því að tala að lokum um baráttu- skyldu, sósíalisma, taóisma o. fl. I því sambandi kemst hann m. a. svo að orði, að undirritaður láti „ sem stjórnmála- hugmyndir skáldsins hafi aðeins verið einhver almenn ást á manninum". Árni ymprar m. a. s. á því að ég sé þeirrar skoðunar, að Halldór Laxness hafi „allt- af“ staðið „í sömu sporunum“ (600). Með leyfi, þetta er alger andstæða við það sem ég hef sagt. Eg hélt því fram ! ritdómi mínum, að stjórnmálahugmynd- ir Halldórs Laxness hafi einmitt aldrei verið „einhver almenn ást á manninum", nokkurs konar hugmyndafræði hug- myndafræðinnar vegna. Hann hafi ekki samþykkt stjórnmálakerfi „nema sem tœki til að veita mönnum gott líf, líkam- lega og andlega". Ef stjórnmálakerfi í framkvæmd bregst þeirri grundvallar- hugsjón, þá er það í augum hans af hinu vonda. Það er þessvegna sem hann hefur snúist „af dæmalausri beiskju gegn sósí- alismanum" (455), einsog sú stefna birt- ist í einræðisríkjunum. I því sambandi vitnaði ég í hin kunnu lokaorð Alþýðubókarinnar; „MAÐ- URINN er fagnaðar boðskapur hinnar nýju menningar" o. s. frv. Ég bætti því við að „innsti kjarni“ þessa boðskapar virðist alltaf síðan hafa verið hugsjón skáldsins, „þó að ytri aðstæður hafi ger- breyst á hálfri öld“ (455). Að því leyti má segja að Halldór Laxness hafi staðið „í sömu sporunum“. En um leið hefur sú grundvallarhugsjón, þessi „innsti kjarni", verið hreyfillinn í mörgum skoðanaskiptum hans. Lokaorð Það er líklega ástæða að draga saman í stuttu máli fáein aðalatriði í gagnrýni minni, sem ég þykist hafa rökstutt með skýrum dæmum. 1. Sjálft markmið ritgerðarinnar verður smám saman það óljóst, að lesandinn veit að lokum ekki hvaðan á sig stendur veðrið. 2. Sum aðalhugtök höfundar eru ekki nógu vel skilgreind, og hann beitir þeim alltof oft á vafasaman hátt. 3. Samanburður höfundar — t. d. á hug- myndaheimi þeirra Sigurðar Nordal og Friðriks Nietzsche — er því sem 262
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.