Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Síða 21
Talan níu hlýtur að hafa verið mönnum
heilög, svo oft sem hún kemur fyrir í mörg-
um trúarbrögðum. Hér verða nefnd örfá
dæmi úr norrænni og grískri goðafræði.
Sjálfur Óðinn hékk níu nætur í trénu og nam
fimbulljóð níu. Heimdallur var sonur níu
mæðra. Gerður Gymisdóttir lofar Skími að
hitta Frey í lundinum Barra „eft nætur níu“.
Níundu hverja nótt dmpu átta hringar af
Draupni, jafnhöfgir og hann var sjálfur.
Hermóður reið til undirheima til að heimta
Baldur úr Helju. Hann var níu nætur á leið-
inni. Ægir og Rán eiga níu dætur. Áin Styx
vatt sig níu sinnum utan um undirheima
Hadesar, bróður Seifs Ólympsgoðs. Tart-
aros heitir þar sem ríki Hadesar er dýpst, en
það er jafnlangt niðri í jörðu og himinn er
henni efri. Steðji er níu daga að falla niður
í Tartaros. Seifur lá níu nætur með Mnem-
osine. Blótin miklu í Uppsölum og Hleiðru
voru níunda hvert ár.
Níu man eg heima, segir völvan. Vaf-
þrúðnir jötunn er margvitur, af því að hann
hefur komið í hvern heim, níu kom eg
heima/fyr Niflhel neðan segir hann í ljóð-
málum, sem við hann eru kennd. Þetta má
skilja og túlka á ýmsa vegu. Sannfærandi
kenning er á þá lund, að sú trú yrði ríkjandi
þegar menn fóm að erja akur, að veröldin
fæddist, þroskaðist og dæi eins og kom á
akri, blóm í varpa eða mannskepnan, en
endurfæddist síðan hlaðin lífi og orku og
sama þróun hæfist að nýju og síðan koll af
kolli. í þessum skilningi höfðar völvan til
aldurs síns og reynslu, hún man ekki ein-
ungis tímana tvenna heldur líf níu veralda.
VÖlvan er af jötnakyni, en jötnar em ná-
tengdir undirdjúpunum. Þar er ríki dauðra
og upphaf vizkunnar, því að hún er safn af
lífi hinna dauðu. í bóklausri veröld færðist
reynsla kynslóðanna milli manna, en safn-
aðist ekki í handrit eða bækur. Hinir gömlu
miðluðu henni áður en þeir fóm af þessum
heimi; meðal þeirra bjó öll vizka manna.
Þess vegna vom þeir grafnir heima í landi
ættarinnar. Vizka þeirra og reynsla nýttist
hinum sem eftir vom í krafti fóma og dýrk-
unar.
Vafþrúðnir kom í níu heima fyrir neðan
Niflhel. Áin Styx rennur í níu sveigum um-
hverfis dimma og drungalega veröld Had-
esar, Hermóður var níu nætur til Heljar. Hér
er talan til þess fallin að lýsa víðáttum und-
irheimanna fremur en að dauðir hafi deilzt
í níu staði, hvem upp af öðrum. En vel má
skipta heimsmynd Völuspár og Eddu
Snorra í níu heima: (1) Miðgarður eða
mannheimur, (2) Ásgarður, veröld ása, (3)
Vanabyggð, bústaðir Njarðar, Freys og
Freyju, (4) Útgarður, heimur jötna, (5) Álf-
heimur, sem er tengdur Frey, (6) veröld
dverga í steinum og klettum, (7) Niflheim-
ur, dvalarstaður dauðra hjá Hel, (8) Ná-
strönd, dvalarheimur morðvarga, mein-
svara og flagara eftir dauðann, (9) Valhöll,
o
sæluveröld vopnbitinna manna.
Talan níu er einnig sérstök af öðmm
ástæðum. Fóstur er níu mánuði að vaxa og
þroskast í skauti móður. Þetta undur lífsins
var mönnum mæta vel ljóst, og snar þáttur
í frjósemisdýrkun bænda og búaliðs var að
viðhalda sköpunarmætti jarðar og viðkomu
búpenings. Þeir virðast hafa trúað því, að
veraldarhjólið snerist sinn hring á níu ámm.
Þess vegna voru höfuðblót á níu ára fresti.
Hugmyndir manna um dauðann eru
fjarska ólíkar. í frjósemisdýrkun fornaldar
var dauðinn gildur þáttur, hann var hinn
mikli andstæðingur, í senn upphaf og endir,
því að í dauðanum endurfæddust menn.
Risavaxnar steindysjar víða í Evrópu eru
stórbrotin minnismerki um dauðradýrkun,
TMM 1993:1