Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Síða 30
og til að tryggja að hann sé haldinn, leggur
Týr hægri hönd sína að veði og úlfurinn
bítur hana af þegar hann fær ekki brotið
fjöturinn. í raun eru þessi eiðrof mjög alvar-
leg, ef Týr er verndari réttarins, sem ætla
má úr því að úlfurinn tekur orð hans gild.
Goðsögnin um fjötrun Fenrisúlfs endur-
speglar alvöru málsins. Þrisvar reyna æsir
að binda úlfinn, tvisvar mistekst það, en
þriðja sinni tekst þeim ætlunarverkið vegna
þess að réttarins guð leggur heiður sinn að
veði — og svíkur.
Með 27. vísu hefst lýsing völvunnar á
nútíðinni, hér skiptir um stef, og sagnorðin
í erindinu eru í nútíð til að marka skilin
skýrar en ella. Vísur nr. 27-29 ber að skilja
í samhengi. 28. vísa markar kvæðinu
ramma eða leiksvið, eins og áður er að
vikið. Með 26. vísu er völvan búin að lýsa
sköpuninni og þeim atburðum, sem breyttu
sælu í vá. Hún veit hvar hljóð Heimdallar
er fólgið undir heimstrénu, í Mímisbrunni í
Jötunheimi. Hljóð Heimdallar skilja menn
ýmist sem sjálfa heym hans eða Gjallar-
hom. Ég hallast að hinu síðamefnda, því að
í Eddu segir Snorri, að Mímir drekki úr
brunninum úr Gjallarhomi. I 28. erindi er
frá því greint, að Óðinn hafi fólgið auga sitt
í Mímisbrunni fyrir drykk af þeirri ágætu
uppspretm. Þetta má kalla táknrænt fyrir
ástand í goðheimi. Jötnar hafa komið illu til
leiðar, með hjálp guða, og guðir hafa brotið
helg lögmál. Óðinn hefur látið annað auga
sitt til þess að verða alsjáandi. Hom
Heimdallar er honum horfið, en með öllu er
óskýrt, hvað hann fékk í staðinn. Allt kemur
fyrirekki. Alsjáandi Óðinn fær engu breytt,
Heimdallur geturekki varað goðin við. Ver-
öld arkar að auðnu, sem verður ekki hnikað.
Blóðgur tívurr
30. vísa lýsir váboðum, valkyijur ríða fák-
um sínum, nönnur Herjans, en í næstu er-
indum er lýst dauða Baldurs og þeirri
hefnd, sem yfir hann kom, er Váli drap Höð
hinn blinda, og Loki er bundinn þar sem
hann liggur nú.
Dauði Baldurs er voðalegasti atburður
kvæðisins, að ragnarökum undanskildum.
Vígið er þeim mun ægilegra, að Baldur er
veginn saklaus, og í raun Höður líka. Víg
Baldurs sýnir ótvírætt, að guðirnir lúta ör-
lögunum eins og aðrir:
Eg sá Baldri
blóðgum tívur,
Óðins barni,
örlög fólgin
segir völvan. Þetta er skýr staðfesting þess,
að goðin lúta örlögunum eins og menn.
Loki er ráðbani Baldurs, en Höður vinnur
verkið óafvitandi. Nærtækt er að líta á Gísla
sögu til hliðsjónar: Þorgrímur myrðir Vé-
stein eftir úthugsuðu ráði, en sagan innsigl-
ar vélráð Þorkels Súrssonar síðar í sögunni,
þegar hann er drepinn í hefndarskyni. Óð-
inn getur barn með Rindi til þess að vega
Höð: sá nam Óðins sonur/einnættur vega.
Hér er hann ekki nafngreindur af eðlilegum
ástæðum. Hann vinnur vígið áður en hann
er nefndur og formlega tekinn inn í ættina.
Þess vegna er vígið ekki bróðurmorð. Hins
vegar dugir hefndin ekki til þess að hefta
framgang örlaganna. Frigg grætur vá Val-
hallar í Fensölum, bústað sínum. Hún veit
öll örlög, þess vegna er grátur hennar í senn
harmur og tákn um ófrávíkjanlega fram-
vindu örlaganna: hún grætur hið liðna og
hið ókomna. Hefndin er einskis nýt, og það
stef er endurtekið síðar í kvæðinu, þegar
20
TMM 1993:1