Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1996, Page 61

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1996, Page 61
reyndar þorri norrænna menntamanna fram eftir 19. öld; guðleysi var tæplega komið á dagskrá. Fyrr hefur verið nefnd andstaða Jónasar og félaga hans við kenningar Hegels, og er freistandi að geta þess til að tilfmningakuldi og sú röklega skynsemi sem einkenndi Hegel hafi orkað fráhrindandi á Jónas, sbr. t.d. kvæðið Hugnun. Tilfinningaleg og þjóðernisleg rómantík átti svo sterkar rætur í honum að vísindaleg menntun hans fékk þeim ekki haggað. Áhrifa Schleiermachers og rómantískrar heimspeki sá einkum stað í vaxandi tilhneigingu til algyðistrúar (panþeisma) sem lagði áherslu á að guð væri í öllum hlutum og ekki yrði skilið milli guðs og náttúrunnar. Ýmsir hneigðust til „deisma“, ekki síst náttúrufræðingar, en sú veraldarskoðun gerði ráð fyrir að guð hefði í öndverðu skapað heiminn, en síðan dregið sig í hlé og nú réðu náttúrulögmál og því væri könnun þeirra mikilvæg. Tæpast leikur nokkur vafi á því að Jónas hefur orðið fyrir áhrifum frá algyðistrú og sú mikla áhersla sem einkum þýskir heimspekingar og skáld lögðu á mikil- vægi náttúrunnar höfðaði auðvitað alveg sérstaklega til hans. Of mikil einföldun væri þó, að mínu mati, að kalla Jónas algyðistrúar og reyndar beinlínis skakkt. Þvert á móti hníga sterk rök að því að Jónas hafi aldrei gefið upp á bátinn sinn gamla kristindóm, hugmyndina um guð sem veiti veröld- inni guðlega forsjá og framhaldslíf. Hann leggur talsvert á sig til að halda í hann, leitast við að fella þessar hugmyndir saman, enda fundu báðar sam- hljóm í hjarta hans. Kvæði hans og önnur skrif eru órækur vottur þess að Jónas hugsar mikið um þessi mál, hann er vel heima í helstu kenningum síns tíma í guðfræði og trúarlegum efnum, sem og raunvísindum, og bregst við þeim í kvæðum sínum, þ. á m. Grátittlingnum. í þessu sambandi vil ég vekja sérstaka athygli á merkilegum ummælum í 1. hefti Fjölnis, sem fylgja þýddri grein, ,Athugasemdir um íslendinga, einkum í trúarefnum“ eftir danska guðfræðinginn Loðvík Kristján Muller. Þar sem Muller talar um „skynsemistrú" (rationalisma) gera þýðendurnir, Jónas og Konráð, þessa athugasemd neðanmáls: „Viðvíkjandi því sem höf- undurinn segir um trúrækni íslendinga er nauðsynlegt að geta þess að skynsemistrúendur kallast með réttu þeir einir er í trúarefnum meta skyn- semi sína meir en guðlega opinberun, á slíkan hátt að þegar þeim finnst skynseminni og henni beri eklú saman, álíta þeir hana óáreiðanlega. I byrjun þessarar aldar, þá margir álitu skynsemina einhlíta í trúarefnum og héldu að guð hefði ekki opinberast mannkyninu á annan hátt en í skynseminni er hann hefur gefið því (Naturalister), voru skynsemistrúendurnir almennir; en síðan hefur tala þeirra farið minnkandi. Sumir sem kenndu á móti skynsemistrúnni rötuðu ekki meðalhófið, heldur en vant er að vera þegar í keppni er komið og bönnuðu mönnum öldungis að neyta skynseminnar í trúarefnum, en skipuðu þeim þó að trúa á annarra manna skynsemi, þ.e. TMM 1996:3 59
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.