Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1996, Page 132

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1996, Page 132
heimi sem er afmarkaður, ekki bara af bókarspjöldum heldur einnig af ákveðnum endurteknum tilfinningum, steíjum, mótífum og myndum; skáld- skaparbrögðum sem skáldið beitir til að marka sér sérstöðu og skapa þann persónulega blæ sem við köllum höf- undareinkenni. Af íslenskum samtíma- höfundum sem einna best hefur tekist upp í slíkri sköpun persónulegs skáld- skaparheims má nefna til dæmis Gyrði Elíasson og Kristínu Ómarsdóttur; sá sem les bækur þeirra velkist ekki í vafa um hvar hann er staddur; í heimi þar sem kennileitin benda öll á skapara sinn og engan annan. Með þrennu sinni hefur Ágústínu Jónsdóttur tekist eitt- hvað álíka og Gyrði og Kristínu; að smíða úr orðum heim sem er hennar og getur ekki verið frá öðrum kominn. Það þýðir þó ekki að sem skáld sé hún laus undan áhrifavaldi hefðarinnar: annarra skálda og verka þeirra. Síður en svo, ljóst er að hún er lesin í ljóðum og sögum og texti hennar er fullur vísana í ýmsar átt- ir: í bækur, myndlist og tónlist. En Ágústína er ekki hermiskjóða, hún er sjálfstæð í sköpun sinni, kann að nota arfinn og hefðina og fer vel með hvort tveggja. Eitt skáld vil ég þó nefha sem augljósastan áhrifavald (og kannski eig- um við þar sameiginlegt uppáhalds- skáld), en það er Stefán Hörður Grímsson. Vísanir til ljóða hans eru nokkrar og mér sýnist að af honum hafi Ágústína lært góða hluti. II En hver er sá heimur sem lykur allar þrjár bækur Ágústínu Jónsdóttur? Hvaðan kemur hann? Úr hverju er hann smíðaður? Hverju miðlar hann? I ljóðinu „Vefskyn“ úr fyrstu bóldnni, Að baki mánans (Abm, í tilvitnunum), segir: Engin orð án þelsins sem ljóð mín spinnast úr án þín formlaus ljóðspjöll engu að miðla (Abm, 14) Sá sem þarna er ávarpaður í 2. persónu er elskhugi ljóðmælandans og kemur hann fyrir í mörgum ljóðanna, ýmist sem þú eða hann, alltaf sá sem ljóðmæl- andinn elskar og girnist, tregar og þráir. En eins og ljóðið sýnir er hinn elskaði meira en viðfang ljóðanna, hann er einnig aflvaki þeirra og uppspretta. Hér er skemmtilega leikið með tvöfalda merkingu orðsins þel þegar ljóðin eru sögð spinnast úr því þeli sem ljóðmæl- andinn ber til hins elskaða. Mikil áhersla er lögð á þetta hlutverk elskhugans sem uppsprettu skáldskaparins og gaman er að velta því fyrir sér hvort Ágústína brjóti hér elcki blað í íslenskri ljóðlistar- sögu með því að gera karllcyns elskhuga að „músu“, sem á íslensku heitir skáld- skapargyðjo; hvort hér sé ekki komið fyrsta skáldskapargoð íslenskrar Ijóð- hefðar. Tilvitnaða ljóðið hér að ofan er úr fyrstu bókinni og það er ekki eina ljóðið úr þeirri bók þar sem þessi hugs- un er sett fram. Og í hinum tveimur síðari er það sama uppi á teningnum. í Sónötu (Són í tilvitnunum) er t.a.m. þessi texti: Æðasláttur textans er rödd hans úr barka hennar og blóð hans streymir um æðar hennar uns það sameinast í snjókorni að baki mánans sem myndar hvert einstakt orð. Ég sáði orðum. (Són, 11) í þessu textabroti sjáum við einnig vísun í titil fýrstu bókarinnar, jafnvel einnig í Snjóbirtu (Sn í tilvitnunum), á óbeinan 130 TMM 1996:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.