Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Side 52

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Side 52
JÓN ÓSKAR Ég sagði við sjálfan mig: Þú ert ungur og rólegur og þú ert marxisti og hugsar vísindalega. Þú getur horft á föður þinn deyja, án þess þú bliknir. Söguleg þróun. Allt er söguleg þróun. Einnig þetta. Um miðja nótt vaknaði faðir minn af dvalanum, settist fram á rúm- stokkinn og strauk um kvið sér og sagði: Ég skil ekkert í þessu. Ég skil það ekki heldur, sagði móðir mín sem hvarflaði augunum í ráðaleysi, því við gátum ekkert gert nema horfa á þetta vanmegna og óska þess að hann missti aftur meðvitund og meðan þetta varði sá ég ekki fyrir mér fótleggi stúlkunnar, en þegar faðir minn var aftur hnig- inn í ómegin, leit ég út að glugganum einsog til að anda léttara og þá sá ég, að farið var að skíma af degi, og um leið sá ég fallegt andlit stúlkunnar og samúðina í augum hennar og síðan fagurgerða fótleggi hennar, þegar hún gekk út úr lyftunni. Ég stóð við fótagaflinn á rúmi föður míns og horfði á hann, en hann raknaði ekki framar við. Orðin „Ég skil ekkert í þessu“ voru síðustu orð hans í þessu lífi. Hann lá nú kyrr, en í andlit hans voru sífellt að koma kippir eins og krampadrættir og ýmist var ég að horfa á þessa kippi eða ég var að horfa til hliðar á gluggann, þar sem skímdi af nýjum degi og ég sá ævinlega fagurskapaða fótleggi stúlkunnar, og síðan sá ég andlit föður míns sem herptist saman einsog hann væri að taka and- vörpin í óskaplegum sogum og móðir mín kom inn grátandi og gekk út að glugganum og leit út í morgunskímuna og til himins og sagði: Hvers vegna getur þetta hjarta ekki hætt að slá? Og ég leit á hana, þar sem hún stóð við gluggann og ég þagði, en um leið sá ég hjúkrunarkonuna (sem ef til vill var engin hjúkrunarkona) ganga út úr lyftunni og ég sá fegurð hennar og þróttinn í hreyfingum hennar, og ég flýtti mér að líta aftur á föður minn, og þá sá ég óskaplega kippi fara um andlit hans, einsog hann væri að reyna að losna við eitt- hvað eða losna úr einhverju, en gæti það ekki, og ég leit aftur upp og að glugganum og sá móður mína ganga frá glugganum grátandi og út úr herberginu, en ég sá fætur stúlkunnar sem var að ganga út úr lyftunni um leið og ég sá, að loksins var faðir minn að taka andvörpin - síðustu andvörpin. Móðir mín kom inn í því bili og var grátandi, en ég felldi ekki tár. Hún gekk að rúminu og lokaði augum föður míns. Guði sé lof, að þessu er lokið, sagði hún og grét ekki lengur. 50 www.mm.is TMM 1999:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.