Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Blaðsíða 86
ERNEST HEMINGWAY
kofanna. Ljós var í kofaglugga næst stígnum. Gömul kona stóð í dyr-
unum með lampa í hendi.
Þar inni lá ung indjánakona í koju. Hún hafði verið að reyna að fæða
barn undanfarna tvo daga. Allar gömlu konurnar í búðunum höfðu
verið að hjálpa henni. Karlmennirnir höfðu ranglað burt uppeft ir veg-
inum til að sitja í myrkrinu og reykja og þurfa ekki að hlusta á óhljóðin
í konunni. Hún öskraði í sama mund og Nick og indjánarnir tveir fóru
á eftir föður hans og George frænda inní kofann. Hún lá í neðri koj-
unni þung og digur undir ábreiðunni. Höfuðið var undið til hliðar. í
efri kojunni var maðurinn hennar. Hann hafði höggvið sig illa í fótinn
með öxi þremur dögum fyrr. Hann var að totta pípu. Herbergið var
ákaflega illa þeþandi.
Faðir Nicks lagði svo fyrir að heitt vatn væri sett á ofninn, og meðan
það var að hitna talaði hann við Nick.
„Þessi kona er að fæða barn, Nick,“ sagði hann.
„Ég veit það,“ sagði Nick.
„Þú veist það ekki,“ sagði faðir hans. „Hlustaðu nú á mig. Það sem
hún er að ganga í gegnum er kallað fæðingarhríðir. Barnið vill fæðast
og hún vill það fæðist. Allir vöðvar líkamans eru að reyna að láta barn-
ið fæðast. Það er þetta sem gerist þegar hún veinar.“
„Ég skil,“ sagði Nick.
í sömu andrá öskraði konan.
)VÆi> pabbi, geturðu ekki gefið henni eitthvað svo hún hætti að
veina?“ spurði Nick.
„Nei, ég hef ekkert deyfilyf,“ sagði faðir hans. „En það skiptir ekki
máli þó hún veini. Ég heyri ekki í henni afþví það skiptir ekki máli.“
Eiginmaðurinn í efri kojunni bylti sér til veggjar.
Konan í eldhúsinu gaf lækninum merki um að vatnið væri heitt.
Faðir Nicks fór frammí eldhúsið og helti umþaðbil helmingnum af
vatninu úr stórum katli í skál. I vatnið sem eftir var í katlinum lagði
hann nokkur áhöld sem höfðu verið vafrn inní vasaklút.
„Þetta verður að sjóða,“ sagði hann og byrjaði að þvo sér rækilega
um hendurnar í heita vatninu í skálinni með sápustykki sem hann
hafði haft meðferðis úr búðunum. Nick fylgdist með hvernig hend-
urnar neru hvor aðra með sápunni. Faðir hans hélt áfram að tala með-
an hann þvoði sér um hendurnar.
„Sjáðu til, Nick, börnum er ætlað að fæðast með höfuðið á undan,
84
www.mm.is
TMM 1999:2